Tilkynningar

Nefndadagar 30. maí og 1. júní

28.5.2018

Forsætisnefnd hefur samþykkt þá breytingu á starfsáætlun Alþingis að miðvikudaginn 30. maí verði ekki þingfundur en fastanefndir þingsins fundi í staðinn. Föstudagurinn 1. júní er nefndadagur samkvæmt starfsáætlun. Gert er ráð fyrir að nefndir fundi á eftirfarandi tímum:

Miðvikudagur 30. maí

  • Kl. 9–12: Fjárlaganefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, utanríkismálanefnd og velferðarnefnd.
  • Kl. 12–13: Hádegishlé.
  • Kl. 13–15: Þingflokksfundir.
  • Kl. 15–19: Allsherjar- og menntamálanefnd, atvinnuveganefnd, efnahags- og viðskiptanefnd og umhverfis- og samgöngunefnd.

Föstudagur 1. júní

  • Kl. 9–12: Fjárlaganefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, utanríkismálanefnd og velferðarnefnd.
  • Kl. 12–13: Hádegishlé
  • Kl. 13–19: Allsherjar- og menntamálanefnd, atvinnuveganefnd, efnahags- og viðskiptanefnd, umhverfis- og samgöngunefnd.

Endanlegir fundatímar nefnda og dagskrár funda birtast á síðunni Nefndafundir