Tilkynningar

Nefndadagur 18. september

18.9.2019

Samkvæmt starfsáætlun Alþingis verður nefndadagur miðvikudaginn 18. september. Gert er ráð fyrir að nefndir fundi á eftirfarandi tímum:

• Kl. 9-12: Fjárlaganefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, utanríkismálanefnd og velferðarnefnd
• Kl. 15-18: Allsherjar- og menntamálanefnd, atvinnuveganefnd, efnahags- og viðskiptanefnd og umhverfis- og samgöngunefnd

Endanlegir fundatímar nefnda og dagskrár funda birtast á síðunni Nefndafundir.