Tilkynningar

Nefndadagur föstudaginn 12. febrúar

11.2.2021

Föstudaginn 12. febrúar er nefndadagur samkvæmt starfsáætlun Alþingis. Þá gildir sérstök fundatafla um fundi fastanefnda og venja er að nefndir fundi fyrir og eftir hádegi. Við ákvörðun fundartíma á nefndadögum er reynt að gæta samræmis og tekið mið af stöðu mála í nefndum og fundaþörf nefnda.

Fundatafla

  • Kl. 9–12: Fjárlaganefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, utanríkismálanefnd og velferðarnefnd
  • Kl. 13–16: Allsherjar- og menntamálanefnd, atvinnuveganefnd, efnahags- og viðskiptanefnd og umhverfis- og samgöngunefnd


Endanlegir fundartímar og dagskrár funda birtast venju samkvæmt á vef Alþingis.