Tilkynningar
Nefndadagur föstudaginn 27. nóvember
Föstudaginn 27. nóvember er nefndadagur samkvæmt starfsáætlun Alþingis. Á nefndadögum gildir sérstök fundatafla um fundi fastanefnda og venja er að fundað sé bæði fyrir og eftir hádegi.
Við ákvörðun um fundatíma á nefndadögum er reynt að gæta samræmis en jafnframt tekið mið af stöðu mála í nefndum og fundaþörf nefndanna.
Fundatafla föstudagsins er eftirfarandi:
- kl. 9-12: Allsherjar- og menntamálanefnd, atvinnuveganefnd, efnahags- og viðskiptanefnd og umhverfis- og samgöngunefnd
- kl. 13-16: Fjárlaganefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, utanríkismálanefnd, velferðarnefnd
Endanlegir fundartímar og dagskrár funda birtast venju samkvæmt á vef Alþingis.