Tilkynningar

Nefndadagur föstudaginn 28. maí

20.5.2021

Föstudaginn 28. maí er nefndadagur samkvæmt starfsáætlun Alþingis. Þá gildir sérstök fundatafla og er samkvæmt venju fundað bæði fyrir og eftir hádegi í nefndum. Við ákvörðun fundartíma á nefndadögum er reynt að gæta samræmis og mið tekið af stöðu mála í nefndum og fundaþörf nefnda.

Fundatafla

  • Kl. 9–12: Allsherjar- og menntamálanefnd, atvinnuveganefnd, efnahags- og viðskiptanefnd og umhverfis- og samgöngunefnd
  • Kl. 13–16: Fjárlaganefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, utanríkismálanefnd og velferðarnefnd


Endanlegir fundartímar og dagskrár funda birtast venju samkvæmt á vef Alþingis.