Tilkynningar

Niðurstaða dómnefndar í hönnunarsamkeppni um nýbyggingu á Alþingisreit

17.12.2016

Formaður dómnefndar í hönnunarsamkeppni um nýbyggingu á Alþingisreit, Einar K. Guðfinnsson, fyrrverandi forseti Alþingis, tilkynnti í dag um niðurstöðu dómnefndar í hönnunarsamkeppni um nýbyggingu á Alþingisreit.   

Arkitektar Studio Granda áttu verðlaunatillöguna. Allar tillögurnar sem bárust má sjá í dómnefndaráliti. T.ark arkitektar áttu tillöguna í öðru sæti og  PKdM arkitektar tillöguna í þriðja sæti. 

Verðlaunahafar í hugmyndasamkeppni um nýbyggingu á AlþingisreitSteingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, Einar K. Guðfinnsson, formaður dómnefndar og fyrrverandi forseti Alþingis, ásamt verðlaunahöfum; Arkitektar Studio Granda, Steve Christer, Margrét Harðardóttir  og höfundur listskreytingar Kristinn E. Hrafnsson.

Sýning á öllum tillögum sem nefndinni bárust verður opin á 1. hæð Landssímahúss (gengið inn frá Austurvelli) kl. 14–17 sunnudaginn 18. desember og á virkum dögum kl. 16–18 fram að áramótum.  

1. verðlaun í hönnunarsamkeppni um nýbygginu á Alþingisreitnum