Tilkynningar

Hátíð Jóns Sigurðssonar í Jónshúsi í Kaupmannahöfn 19. apríl 2012

18.4.2012

Hátíð Jóns Sigurðssonar verður haldin í Jónshúsi í Kaupmannhöfn á sumardaginn fyrsta, 19. apríl 2012, kl. 16.30. Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta verða afhent af því tilefni. Markmiðið með hátíðinni er að heiðra minningu Jóns Sigurðssonar og halda á lofti verkum hans og hugsjónum.

Alþingi veitir Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta í minningu starfa hans í þágu Íslands og Íslendinga. Þau hlýtur hverju sinni einstaklingur sem hefur unnið verk er tengjast hugsjónum og störfum Jóns Sigurðssonar. Þessi verk geta verið á sviði fræðistarfa, viðskipta eða mennta- og menningarmála.

Nánari upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar er að finna á vef Jónshúss.