Tilkynningar

Fyrsti dagskrárliður, Vaðlaheiðargöng, á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 16. janúar verður opinn fréttamönnum

13.1.2012

Fyrsti dagskrárliður, Vaðlaheiðargöng, á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 16. janúar verður opinn fréttamönnum. Fundurinn hefst kl. 9.00.

Gestir: Frá IFS Ráðgjöf: Kjartan Broddi Bragason, Margeir Ásgeirsson og Ólafur Ásgeirsson. Frá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands Sveinn Agnarsson og Jónas Hlynur Hallgrímsson. Pálmi Kristinsson verkfræðingur.

Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fjölmiðlamönnum meðan húsrúm leyfir.

Fundurinn er opinn fréttamönnum en er hvorki tekinn upp né sent beint út frá honum á vegum Alþingis.
Fundurinn verður haldinn með stoð í nýju ákvæði 2. mgr. 19. gr. laga um þingsköp Alþingis.