Tilkynningar

Aðalfundur Hins íslenska þjóðvinafélags

7.12.2011

Aðalfundur Hins íslenska þjóðvinafélags var haldinn í Alþingishúsinu, fundarsal Alþingis, miðvikudaginn 7. desember 2011. Fundardaginn bar upp á dánardag Jóns Sigurðssonar forseta.

Hið íslenska þjóðvinafélag var stofnað af alþingismönnum 19. ágúst 1871. Í lögum félagsins er það ákvæði að aðalfundir þess skuli haldnir á Alþingi annað hvert ár. Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, setti fundinn og stjórnaði honum. Þuríður Backman alþingismaður var fundarritari.

Ólafur Ásgeirsson þjóðskjalavörður, forseti Þjóðvinafélagsins, sat fundinn af hálfu forstöðumanna þess. Hann skýrði frá störfum félagsins frá síðasta aðalfundi og gerði grein fyrir reikningum þess fyrir árin 2008–2010. Voru reikningarnir samþykktir.

Að lokum fór fram kosning stjórnar félagsins og endurskoðenda þess. Ólafur Ásgeirsson þjóðskjalavörður var endurkosinn forseti félagsins. Dr. Guðrún Kvaran orðabókarritstjóri var kosin varaforseti og meðstjórnendur þeir Heimir Þorleifsson sagnfræðingur, Gunnar Stefánsson dagskrárfulltrúi og Karl M. Kristjánsson, aðstoðarskrifstofustjóri Alþingis. Endurskoðendur voru kjörnir Friðrik Ólafsson, fyrrverandi skrifstofustjóri Alþingis, og Sigurður Þórðarson, fyrrverandi ríkisendurskoðandi.

Þjóðvinafélagið gefur út ársritin Almanak og Andvara svo sem það hefur gert frá stofnun þess. Eru þau nýkomin út fyrir þetta ár. Sögufélag annast afgreiðslu bókanna. Fyrr á árinu, hinn 17. júní 2011, kom út aukahefti af Andvara í tilefni þess að þá voru liðin 200 ár frá fæðingu Jóns Sigurðssonar.