Tilkynningar

Gestafundur, dagskrárliður 2, skýrsla eftirlitsnefndar með framkvæmd sértækrar skuldaaðlögunar, á fundi velferðarnefndar 2. nóvember opinn fréttamönnum

31.10.2011

Á fundi velferðarnefndar Alþingis miðvikudaginn 2. nóvember 2011 kl. 9.10-10.40 verður 2. dagskrárliður fundarins opinn fulltrúum fjölmiðla. Til umræðu undir þeim dagskrárlið verður skýrsla eftirlitsnefndar með framkvæmd sértækrar skuldaaðlögunar og gestir nefndarinnar verða nefndarmenn eftirlitsnefndarinnar: Maria Thejll, formaður nefndarinnar, og Þórólfur Matthíasson.

Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fjölmiðlamönnum meðan húsrúm leyfir.

Ekki verður um beina útsendingu að ræða frá fundinum.

Gestafundir opnir fjölmiðlamönnum eru haldnir skv. nýju ákvæði 2. mgr. 19. gr. laga um þingsköp Alþingis.