Tilkynningar

Opinn fundur í efnahags- og viðskiptanefnd með fjármálaráðherra miðvikudaginn 12. október - bein útsending

11.10.2011

Opinn fundur verður haldinn í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis miðvikudaginn 12. október 2011 kl. 09.30. Áætlað er að fundurinn standi til kl. 11.00.

Gestur fundarins verður Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra. Rætt verður um þau mál sem ráðherra hyggst leggja fram á komandi þingi.

Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.

Bein útsending verður frá fundinum í ríkissjónvarpinu, á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone.