Tilkynningar

Hátíð Jóns Sigurðssonar í Jónshúsi í Kaupmannahöfn 19. júní 2011

16.6.2011

Hátíð Jóns Sigurðssonar verður haldin í Jónshúsi í Kaupmannhöfn á kvenréttindaginn, 19. júní 2011 kl. 16.00, og verða Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta afhent af því tilefni. Markmiðið með hátíðinni er að heiðra minningu Jóns Sigurðssonar og halda á loft verkum hans og hugsjónum.


Alþingi veitir Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta í minningu starfa hans í þágu Íslands og Íslendinga. Þau hlýtur hverju sinni einstaklingur sem hefur unnið verk er tengjast hugsjónum og störfum Jóns Sigurðssonar. Þessi verk geta verið á sviði fræðistarfa, viðskipta eða mennta- og menningarmála. Forsætisnefnd Alþingis tekur ákvörðun um hvaða einstaklingur hlýtur verðlaunin á grundvelli tillögu úthlutunarnefndar fræðimannsíbúðar Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn.

Nánari upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar er að finna á vef Jónshúss.