Tilkynningar

Opinn fundur viðskiptanefndar um verðtryggingu á Íslandi

10.5.2010

Opinn fundur var haldinn í viðskiptanefnd Alþingis mánudaginn 10. maí 2010 kl. 9.30. Verðtrygging á Íslandi var til umræðu.

Gestir fundarins voru Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, og Friðrik Ó. Friðriksson og Marinó G. Njálsson, frá Hagsmunasamtökum heimilanna.

Fundurinn var haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis að Austurstræti 8-10 og var opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi.

Fundurinn var sendur beint út á vef Alþingis og eru nú aðgengilegar  hljóð- og myndupptökur. Fundurinn var jafnframt sendur út á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone.

Fundurinn var haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis, sjá reglur.