Tilkynningar

Frestur til að sækja um styrk fyrir fjárlagaárið 2010 er til 15. júní

20.5.2009

Fjárlaganefnd Alþingis veitir nú eins og undanfarin ár viðtöku erindum frá félögum, samtökum og einstaklingum sem varða fjárlög ársins 2010.

Umsókn um styrk, ásamt fylgiskjölum, skal skilað á þar til gerðu eyðublaði, sjá nánari upplýsingar á vefsíðu fjárlaganefndar. Umsóknin þarf að hafa borist nefndinni eigi síðar en mánudaginn 15. júní nk. Ekki er hægt að tryggja úrvinnslu umsókna sem berast eftir þann tíma.

Þeim sem vilja er gefinn kostur á að fylgja erindum sínum eftir á nefndarfundi. Beiðni þar um skal send á netfangið aro@althingi.is. Um viðtalstíma fer eftir nánari ákvörðun nefndarinnar.

Vinsamlegast athugið að undirritað frumrit umsóknar þarf að hafa borist fjárlaganefnd eigi síðar en mánudaginn 15. júní.