Tilkynningar

Úthlutun fræðimannsíbúðar Húss Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn 2009-2010

11.5.2009

Úthlutunarnefnd fræðimannsíbúðar samkvæmt reglum um Hús Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn hefur lokið störfum og úthlutað íbúðinni frá september 2009 til ágústloka 2010.

Í nefndinni eiga sæti Anna Agnarsdóttir prófessor við Háskóla Íslands, formaður, Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst og Kristinn Ólason, rektor Skálholtsskóla.Ritari nefndarinnar er Jörundur Kristjánsson, alþjóðaritari á skrifstofu forseta Alþingis.

Alls bárust nefndinni að þessu sinni 28 umsóknir. Tíu fræðimenn fá afnot af íbúðinni, sem hér segir:

Bryndís Hlöðversdóttir til að vinna að verkefni um eftirlitshlutverk danska þjóðþingsins eftir lagabreytingarnar 1999.

Clarence E. Glad til að vinna að verkefni um klassíska menntun á Íslandi.

Eggert Þór Bernharðsson til að vinna að verkefni um sögumiðlun og sýningar í Kaupmannahöfn og á Íslandi.

Einar Sigurbjörnsson til að vinna að rannsóknum í sálmafræði.

Jón Karl Helgason til að vinna að verkefni um arfleifð þjóðardýrðlinga; Jónas Hallgrímsson í evrópsku og kaþólsku samhengi.

Margrét Eggertsdóttir til að rannsaka sálmaþýðingar Stefáns Ólafssonar í Vallanesi og áhrif þeirra á íslenska menningarsögu.

Tinna Laufey Ásgeirsdóttir til að vinna verkefni um áhrif samfélagsgerðar og Norræns stofnanaumhverfis á heilsu og heilsudreifingu.

Valdimar Tr. Hafstein til að vinna verkefni um „Þjóðkvæðastríðið“; höfundarhugtakið og eignarhald á hugverkum.

Þór Eyfeld Magnússon til að vinna verkefni um íslenska gullsmiði sem lærðu í Danmörku á 18. og 19. öld og ílentust þar.

Þórður Ingi Guðjónsson til að vinna verkefni um Varðveislu Gísla sögu Súrssonar og „akademíska skrifara á 18. öld“.

Fræðimannsíbúðin í Kaupmannahöfn, tengd nafni Jóns Sigurðssonar, er skammt frá Jónshúsi, í Sankt Pauls Gade 70. Fræðimaður hefur vinnustofu í Jónshúsi.