Tilkynningar

Nicholas Burns heimsækir Alþingi

14.6.2007

Forseti Alþingis, Sturla Böðvarsson, tók í dag á móti Nicholas Burns aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna í Alþingishúsinu. Forseti Alþingis ávarpaði Burns í þingsal og gekk með honum um þinghúsið. Burns ritaði síðan nafn sitt í gestabók Alþingis. Bandaríski aðstoðarutanríkisráðherrann er staddur hér á landi til viðræðna við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra um tvíhliða samstarf þjóðanna í öryggis- og varnarmálum.