Tilkynningar

Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana 10. júní 2013

10.6.2013

Umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra verður útvarpað og sjónvarpað mánudaginn 10. júní, kl. 19.40. Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hefur 20 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra hafa 12 mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð hafa þingflokkarnir 6 mínútur en í þeirri þriðju 5 mínútur hver þingflokkur.

Röð flokkanna er í öllum umferðum þessi:

Framsóknarflokkur,
Samfylkingin,
Vinstri hreyfingin – grænt framboð,
Sjálfstæðisflokkur,
Björt framtíð,
Píratar.

Fyrir Framsóknarflokk tala Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, í fyrstu umferð, í annarri Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, og í þriðju umferð Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra.

Ræðumenn Samfylkingarinnar verða í fyrstu umferð Árni Páll Árnason, 4. þm. Suðvesturkjördæmis, Katrín Júlíusdóttir, 11. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, 3. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð verða Katrín Jakobsdóttir, 3. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, í annarri Ögmundur Jónasson, 8. þm. Suðvesturkjördæmis, og í þriðju umferð Bjarkey Gunnarsdóttir, 9. þingmaður Norðausturkjördæmis.

Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk verða Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, í fyrstu umferð, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, 3. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í annarri umferð og Valgerður Gunnarsdóttir, 6. þingmaður Norðausturkjördæmis, í þriðju umferð.

Fyrir Bjarta framtíð tala í fyrstu umferð Guðmundur Steingrímsson, 7. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í annarri Brynhildur Pétursdóttir, 10. þingmaður Norðausturkjördæmis, og í þriðju umferð Óttarr Proppé, 11. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður.

Fyrir Pírata tala Jón Þór Ólafsson, 10. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður í fyrstu og þriðju umferð, og Helgi Hrafn Gunnarsson, 10. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður í fyrstu og annarri umferð.