Tilkynningar

Bein útsending frá fundi um störf peninga­stefnu­­nefndar 

13.11.2014

Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis heldur opinn fund mánudaginn 17. nóvember kl. 9:30. 

Rætt verður um störf peningastefnunefndar.
Gestir frá peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands verða Már Guðmundsson, Katrín Ólafsdóttir og Þórarinn G. Pétursson.
Skýrslur peningastefnunefndar til Alþingis á vef Seðlabanka Íslands.

Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir. 
Bein útsending verður frá fundinum í ríkissjónvarpinu og á vef Alþingis og sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone.
Fundurinn verður haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis, sjá reglur