Tilkynningar

Umsóknir um dvöl í íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn 2013-2014

15.3.2013

Íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn er, samkvæmt reglum um hús Jóns Sigurðssonar, laus til afnota tímabilið 28. ágúst 2013 til 26. ágúst 2014.
Allar nánari upplýsingar og sérstök umsóknareyðublöð er að finna á vef Jónshúss. Umsóknir um íbúðina skulu hafa borist skrifstofu Alþingis eigi síðar en þriðjudaginn 16. apríl nk.