Opinn fundur í allsherjar- og menntamálanefnd með innanríkisráðherra 18. október - bein útsending
Opinn fundur verður haldinn í allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis fimmtudaginn 18. október kl. 8.30-10.00.
Gestur fundarins er Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra. Ráðherra mun kynna þingmálaskrá skv. 3. mgr. 47. gr. laga um þingsköp, þ.e. þau mál sem hann hyggst leggja fram á þinginu.
Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.
Bein útsending verður frá fundinum í ríkissjónvarpinu, á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone.
Fundurinn verður haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis.