Tilkynningar

Fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis 13. september 2012 opinn fréttamönnum

10.9.2012

Fyrirhugað er að 3. dagskrárliður, styrkir til stjórnmálaflokka, á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis 13. september 2012, verði opinn fréttamönnum. Gestir verða frá Ríkisendurskoðun Sveinn Arason og Lárus Ögmundsson.

Dagskrá fundarins.

Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fjölmiðlamönnum meðan húsrúm leyfir.

Fundurinn er opinn fréttamönnum en er hvorki tekinn upp né sent beint út frá honum á vegum Alþingis.

Fundurinn verður haldinn með stoð í ákvæði 2. mgr. 19. gr. laga um þingsköp Alþingis