Tilkynningar

Nýtt myndband um störf Alþingis

2.2.2021

Athygli er vakin á nýju fræðslumyndbandi um störf Alþingis. Myndirnar teiknaði Rán Flygenring sem vann myndbandið ásamt Sebastian Ziegler og þulur er Álfrún Helga Örnólfsdóttir.

Myndbandið er ætlað til fræðslu nemenda og mun til dæmis nýtast við undirbúning skólahópa fyrir fræðsluheimsókn á Alþingi og sem ítarefni við kennslu um Alþingi í skólunum. Myndbandið er einnig ætlað almenningi, ungum jafnt sem öldnum, til að veita innsýn í starfsemi Alþingis á skemmtilegan og lifandi máta.

Myndbandið á YouTube