Tilkynningar

Opinn fjarfundur efnahags- og viðskiptanefndar miðvikudaginn 28. apríl

27.4.2021

Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis heldur opinn fjarfund miðvikudaginn 28. apríl kl. 13:00. Tilefnið er skýrsla fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis 2020. Gestir á fundinum verða Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Gunnar Jakobsson varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika.

Vegna takmarkana á fundahaldi fastanefnda er ekki unnt að hafa fundinn opinn með hefðbundnum hætti eða taka á móti fjölmiðlum á nefndasviði Alþingis. Því verður fundinum streymt á vef þingsins og sjónvarpsrás þess.

Að loknum fundi má nálgast upptöku af fundinum hér.