Tilkynningar

Opinn fundur fjárlaganefndar föstudaginn 29. apríl um sölu ríkisins á hlutum í Íslandsbanka

27.4.2022

Fjárlaganefnd Alþingis heldur opinn fund föstudaginn 29. apríl í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8–10 kl. 8:30 til 9:30. 

Fundarefnið er sala ríkisins á hlutum í Íslandsbanka. Gestir fundarins verða Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, Sigurður H. Helgason skrifstofustjóri og Haraldur Steinþórsson lögfræðingur frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.

Fundurinn verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.

Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis.

Að loknum fundi má nálgast upptöku af fundinum hér. 

Fundurinn verður haldinn samkvæmt X. kafla reglna um starfsreglur fastanefnda Alþingis