Tilkynningar

Opinn fundur í efnahags- og viðskiptanefnd um skýrslu peningastefnunefndar

16.9.2019

Efnahags- og viðskiptanefnd heldur opinn fund með peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands fimmtudaginn 19. september kl. 9:00–10:00. Efni fundarins er skýrsla peningastefnunefndar til Alþingis fyrir fyrri hluta ársins 2019. Gestir verða Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Gylfi Zoega prófessor.

Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.

Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone.

Að loknum fundi má nálgast upptöku af fundinum hér.

Fundurinn verður haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis.