Tilkynningar

Opinn fundur í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd miðvikudaginn 30. nóvember

28.11.2022

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis heldur opinn fund miðvikudaginn 30. nóvember í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8–10. Fundurinn hefst kl. 9:00 og stendur til 10:30. Fundarefnið er skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Gestir fundarins verða Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra.

Fundurinn verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi á meðan húsrúm leyfir.

Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis.

Að loknum fundi má nálgast upptöku af fundinum hér.

Fundurinn verður haldinn samkvæmt X. kafla reglna um starfsreglur fastanefnda Alþingis.