Tilkynningar

Opinn fundur í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd um skipan sendiherra – upptaka

15.1.2019

Opinn fundur um skipan sendiherra verður haldinn í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd miðvikudaginn 16. janúar kl. 10:30. Upptaka af fundinum.

Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir. Gestir fundarins verða Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.

Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone.

Fundurinn verður haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis.