Tilkynningar

Opinn fundur um skýrslu peningastefnunefndar - bein útsending

15.2.2018

Opinn fundur verður hjá efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis með peningastefnunefnd Seðlabankans fimmtudaginn 22. febrúar kl. 9:10 um skýrslu peningastefnunefndar.

Gestir fundarins frá Seðlabanka Íslands verða Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson hagfræðingur. 

Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.

 

Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone. 

Fundurinn verður haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis.