Opinn fundur um skýrslu rannsóknarnefndar - bein útsending
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd heldur opinn fund á morgun 29. mars kl. 12 um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um rannsókn á erlendri þátttöku í kaupum á 45,8% eignarhlut í Búnaðarbanka Íslands hf. o.fl. Bein útsending verður frá fundinum.
Fundurinn hefst kl. 12 – og lýkur um kl. 13
Gestur verður Kjartan Bjarni Björgvinsson, formaður rannsóknarnefndarinnar.
Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.
Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone.
Fundurinn verður haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis.