Tilkynningar

Opinn fundur um stöðu framhaldsskóla - bein útsending

8.5.2017

Allsherjar- og menntamálanefnd heldur opinn fund um stöðu framhaldsskóla þriðjudaginn 9. maí kl. 8.30. Gestir verða frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Kristján Þór Júlíusson mennta- og menningarmálaráðherra og fleiri.

 

Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.

Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone. 

Fundurinn verður haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis.