Tilkynningar

Samningur um síðari hluta talgreiningarverkefnis Alþingis undirritaður

10.9.2018

Fulltrúar Alþingis og tækni- og verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík skrifuðu 7. september undir samning um framhald þróunar og innleiðingu á opnum hugbúnaði, talgreini, sem nýttur verður við útgáfu þingræðna. Vinna við talgreini sem byggir á gervigreind er vel á veg komin og tilraunir til að nota talgreininn til að skrá niður niður ræður á Alþingi hafa gengið ágætlega.

Verkefnið hófst fyrir tveimur árum og var byrjað á því að smíða frumgerð af talgreini sem greindi upptökur af ræðum alþingismanna. Í framhaldi af því var hafist handa við að þjálfa og prófa mismunandi útfærslur á talgreiningu. Í seinni hluta verkefnisins, sem nú er hafinn, er gert ráð fyrir að talgreinirinn verði samþættur við tölvukerfi Alþingis og settir verði upp ferlar sem nýti talgreininn við fyrsta skrefið í að skrifa upp ræður þingmanna.

Talgreiningarverkefnið er unnið í opnum hugbúnaði sem ætti að geta nýst mörgum öðrum sem þurfa að breyta töluðu máli í skrifaðan texta.

 Undirritun_talgreinir

 
Ágúst Valfells, forseti tækni- og verkfræðideildar HR, Jón Guðnason, dósent við tækni- og verkfræðideild HR, Þorbjörg Árnadóttir, forstöðumaður upplýsingatækniskrifstofu Alþingis, Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis, og Ingvar Þór Sigurðsson, forstöðumaður þingfundaskrifstofu Alþingis, við undirritun samnings milli Háskólans í Reykjavík og Alþingis um framhald þróunar talgreinis fyrir Alþingi.