Sjöundi starfsmaðurinn smitaður
Viðbragðsteymi Alþingis greindi frá því í dag að einn starfsmaður til viðbótar hefði um helgina bæst í hóp þeirra sem greinst hafa með Covid-19 veiruna. Viðkomandi hefur starfsstöð í Blöndahlshúsi, en hefur verið í sóttkví sl. tvær vikur. Fjögur þeirra sem áður veiktust af veirunni hafa náð bata og vonir standa til að hin losni úr einangrun á næstu dögum. Einn starfsmaður er í sóttkví til 8. apríl eftir samskipti við einstakling utan skrifstofunnar en hann er ekki veikur.
Á skrifstofu Alþingis verður haldið óbreyttu fyrirkomulagi enn um sinn og starfsfólk vinnur heima eins og mögulegt er. Þeir sem nauðsynlega þurfa að vera á skrifstofunni eru hvattir til að gæta ítrustu varúðar; gæta að handþvotti, virða tveggja metra regluna og sótthreinsa í kringum sig.