Tilkynningar

Staða lögfræðings í starf nefndarritara á nefndasviði Alþingis

28.2.2019

Skrifstofa Alþingis auglýsir eftir lögfræðingi í starf nefndarritara á nefndasvið skrifstofunnar. Nefndarritarar starfa fyrir fastanefndir þingsins, veita lögfræðilega ráðgjöf og aðstoð og sjá um faglega yfirferð stjórnarfrumvarpa og annarra mála sem koma til meðferðar hjá fastanefndum. Nefndarritarar sinna auk þess skipulagningu nefndastarfsins og sjá um samskipti við aðila utan þings fyrir fastanefndir. Þá aðstoða þeir þingmenn við gerð lagafrumvarpa, þingsályktunartillagna og annarra þingmála.

Á nefndasviði starfa um 30 sérfræðingar fyrir fastanefndir, alþjóðanefndir og þingmenn. Auk faglegrar aðstoðar við nefndir og þingmenn sjá starfsmenn sviðsins m.a. um framsetningu og útgáfu þingskjala og uppfærslu lagasafns. Meginmarkmið starfa sviðsins er að tryggja vandaða lagasetningu og að veita þingmönnum og nefndum þingsins faglega sérfræðiþjónustu og -ráðgjöf. Starfið er fjölbreytt og krefjandi í lifandi umhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Fagleg aðstoð og lögfræðileg ráðgjöf við fastanefndir og þingmenn.
  • Yfirferð lagafrumvarpa og annarra þingmála.
  • Vinnsla nefndarálita og breytingartillagna.
  • Gerð lagafrumvarpa og annarra þingmála.
  • Skipulagning og umsjón með starfi fastanefndar.
  • Önnur verkefni.

Hæfnikröfur

  • Embættis- eða meistarapróf í lögfræði.
  • Reynsla úr opinberri stjórnsýslu eða af sambærilegu starfi.
  • Reynsla af gerð lagafrumvarpa er kostur.
  • Góð samskiptahæfni, jákvæðni, sveigjanleiki og rík þjónustulund.
  • Skipulagshæfileikar, frumkvæði og sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
  • Geta til að vinna undir álagi.
  • Gott vald á íslensku og færni í að tjá sig í ræðu og riti.
  • Góð tungumálakunnátta, einkum í Norðurlandamálum og ensku.

Frekari upplýsingar um starfið

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi forseta Alþingis og Félags starfsmanna Alþingis. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Sótt er um starfið í gegnum ráðningarkerfi Orra. Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá ásamt prófskírteinum og kynningarbréfi þar sem umsækjandi rökstyður umsókn sína og lýsir hæfni sinni til starfsins.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsóknir um starfið gilda í sex mánuði frá auglýsingu þessari. Skrifstofa Alþingis hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um starfið.

Gildi skrifstofu Alþingis eru þjónustulund, fagmennska og samvinna.

Starfshlutfall er 100%.

Umsóknarfrestur er til og með 18.3. 2019.

Nánari upplýsingar veita

Hildur Eva Sigurðardóttir – hildureva@althingi.is – 563-0500

Elín Valdís Þorsteinsdóttir – elinvaldis@althingi.is – 563-0500

Sækja um starfið