Tilkynningar

Starfsmaður í mötuneyti Alþingis

9.3.2016

Við leitum að jákvæðum og þjónustuliprum starfsmanni í fullt starf. Skrifstofa Alþingis er lifandi og skemmtilegur vinnustaður sem leggur áherslu á fjölskylduvænt og öruggt vinnuumhverfi. Í mötuneytinu starfa fjórir starfsmenn.

Helstu verkefni og ábyrgð 

Matseld, bakstur og annar matarundirbúningur. 
Undirbúningur og vinna við móttökur og fundi. 
Matseðlagerð. 
Uppþvottur og þrif. 
Önnur verkefni í mötuneyti.

Hæfnikröfur 

Menntun á sviði matartækni eða sambærileg menntun. 
Marktæk reynsla af vinnu í mötuneyti eða í sambærilegu starfi 
Ástríða og góð kunnátta í matargerð og bakstri. 
Þekking á grænmetisfæði kostur. 
Lipurð í mannlegum samskiptum og góð þjónustulund. 
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð. 
Snyrtimennska og stundvísi.

Frekari upplýsingar um starfið 

Mötuneytið er í Skála Alþingis við Kirkjustræti. Þar borða að jafnaði 100-140 manns í hádegi. Einnig er útbúinn matur fyrir kvöldfundi Alþingis, aðra fundi og móttökur. Alþingi býður uppá fjölbreyttan og hollan mat sem eldaður er frá grunni og leggur áherslu á ferskt hráefni.

Athugið að ráðið er í starfið frá 15. ágúst næstkomandi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Um laun starfsmanna Alþingis gildir kjarasamningur milli forseta Alþingis og Félags starfsmanna Alþingis. Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um stöðuna. Umsóknir gilda í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Gildi skrifstofu Alþingis eru: Þjónustulund, fagmennska og samvinna.

Alþingi er reyklaus vinnustaður.

Starfshlutfall er 100% 
Umsóknarfrestur er til og með 04.04.2016

Nánari upplýsingar veitir 

Svana Ingibergsdóttir - svanai@althingi.is - 563 0500

Smelltu hér til að sækja um starfið .