Tilkynningar

Starfsmaður í mötuneyti Alþingis

24.8.2016

Við leitum að jákvæðum og þjónustuliprum starfsmanni í fullt starf. Alþingi er lifandi og skemmtilegur vinnustaður sem leggur áherslu á fjölskylduvænt starfsumhverfi. Í mötuneytinu starfa þrír starfsmenn undir stjórn matráðs.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Matseld, bakstur og annar matarundirbúningur.
  • Undirbúningur og vinna við móttökur og fundi.
  • Matseðlagerð.
  • Uppþvottur og þrif.
  • Önnur verkefni í mötuneyti.

Hæfnikröfur

  • Marktæk reynsla af vinnu í mötuneyti eða stóreldhúsi.
  • Góð þekking á fjölbreyttri matargerð.
  • Þekking á grænmetisfæði kostur.
  • Lipurð í mannlegum samskiptum og góð þjónustulund.
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Metnaður til að ná árangri í starfi.
  • Snyrtimennska og stundvísi.

Frekari upplýsingar um starfið

Mötuneytið er í Skála Alþingis við Kirkjustræti. Þar borða að jafnaði 100-140 manns í hádegi. Einnig er útbúinn matur fyrir kvöldfundi Alþingis, aðra fundi og móttökur. Alþingi býður uppá fjölbreyttan og hollan mat sem eldaður er frá grunni og leggur áherslu á ferskt hráefni. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Alþingi er reyklaus vinnustaður.

Um laun starfsmanna Alþingis gildir kjarasamningur milli forseta Alþingis og Félags starfsmanna Alþingis. Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um stöðuna. 

Umsóknir gilda í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Gildi skrifstofu Alþingis eru:
Þjónustulund, fagmennska og samvinna.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 12.09.2016

Nánari upplýsingar veitir

  • Svana Ingibergsdóttir - svanai@althingi.is - 563 0500
  • Ólöf Þórarinsdóttir - olof@althingi.is - 563 0500

Sækja um starfið