Tilkynningar

Störf við ræstingar

19.8.2015

Starfsmaður í ræstingum


Ræstitæknir

Skrifstofa Alþingis auglýsir eftir ræstingafólki. Um er að ræða fullt starf á dagvinnutíma, vinnutími er kl. 8.00-16.00 eða 7.00-15.00.


Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þrif á skrifstofuhúsnæði Alþingis.


Hæfnikröfur

  • Reynsla af sambærilegu starfi er nauðsynleg.
  • Gott auga fyrir hreinlæti og snyrtimennska.
  • Sjálfstæð vinnubrögð.
  • Þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum.
  • Hæfileiki til að vinna með öðrum.


Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst. Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um stöðuna. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir og umsóknir gilda í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests. Alþingi er reyklaus vinnustaður.


Gildi skrifstofu Alþingis eru: Þjónustulund. Fagmennska. Samvinna.
Starfshlutfall er 100%


Umsóknarfrestur er til og með 07.09.2015


Nánari upplýsingar veitir
Jóna Brynja Tómasdóttir - jbt@althingi.is - 5630500

Sækja um starf