Tilkynningar
Þingskjölum útbýtt utan þingfunda föstudaginn 2. desember
Útbýtt var utan þingfunda föstudaginn 2. desember kl. 13:
- Ákvarðanir nr. 138/2022, nr. 249/2022 og nr. 151/2022 um breytingar á IX. viðauka og bókun 37 við EES-samninginn (fjármálaþjónusta) – nefndarálit, utanríkismálanefnd, þingskjal 686.
- Ákvörðun nr. 396/2021 um breytingu á XX. viðauka við EES- samninginn o.fl. (umhverfismál o.fl.) – nefndarálit, utanríkismálanefnd, þingskjal 687.
- Staðfesting rammasamnings um fiskveiðar milli Íslands og Færeyja, – stjórnartillaga utanríkisráðherra, þingskjal 670.
- Sóttvarnalög – stjórnarfrumvarp heilbrigðisráðherra, þingskjal 671.
- Tóbaksvarnir (innihaldsefni, umbúðir o.fl.) – stjórnarfrumvarp heilbrigðisráðherra, þingskjal 672.
- Póstþjónusta (úrbætur á póstmarkaði) – stjórnarfrumvarp innviðaráðherra, þingskjal 673.
- Þjónusta við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir (framlenging á bráðabirgðaákvæði) – stjórnarfrumvarp félags- og vinnumarkaðsráðherra, þingskjal 674.
- Almannatryggingar og félagsleg aðstoð (réttindaávinnsla og breytt framsetning) – stjórnarfrumvarp félags- og vinnumarkaðsráðherra, þingskjal 675.
- Almannatryggingar (frítekjumark og skerðingarhlutfall) – stjórnarfrumvarp félags- og vinnumarkaðsráðherra, þingskjal 676.
- Lögreglulög (afbrotavarnir, vopnaburður og eftirlit með lögreglu) – stjórnarfrumvarp dómsmálaráðherra, þingskjal 677.
- Raforkulög (viðbótarkostnaður) – stjórnarfrumvarp umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, þingskjal 678.
- Stjórn fiskveiða (orkuskipti) – stjórnarfrumvarp matvælaráðherra, þingskjal 679.
- Veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands (aflvísir) – stjórnarfrumvarp matvælaráðherra, þingskjal 680.
- Stjórn fiskveiða (rafvæðing smábáta) – stjórnarfrumvarp matvælaráðherra, þingskjal 681.
- Opinbert eftirlit Matvælastofnunar (samræming gjaldtökuheimilda) – stjórnarfrumvarp matvælaráðherra, þingskjal 682.
- Seðlabanki Íslands (fjármálaeftirlitsnefnd) – stjórnarfrumvarp forsætisráðherra, þingskjal 683.
- Tónlist – stjórnarfrumvarp menningar- og viðskiptaráðherra, þingskjal 684.
- Fjölmiðlar (stuðningur við einkarekna fjölmiðla) – stjórnarfrumvarp menningar- og viðskiptaráðherra, þingskjal 685.
- Stjórnmálamenn í þáttum Ríkisútvarpsins – svar menningar- og viðskiptaráðherra, þingskjal 558.
- Sjálfkrafa skráning samkynja foreldra – svar innviðaráðherra, þingskjal 621.
- Uppbygging stúdentagarða í Skerjafirði – svar innviðaráðherra, þingskjal 622.
- Menningarsamningur við Akureyrarbæ – svar menningar- og viðskiptaráðherra, þingskjal 623.
- Skýrsla Ríkisendurskoðunar um Samkeppniseftirlitið – álit, meiri hluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, þingskjal 624.
- Innleiðing lýðheilsumats í íslenska löggjöf – tillaga til þingsályktunar, Jóhann Friðrik Friðriksson, þingskjal 25.