Tilkynningar
Þingskjölum útbýtt á vef Alþingis 10. desember
Eftirfarandi þingskjölum var útbýtt utan þingfunda föstudaginn 10. desember klukkan 17:00:
- Starf Seðlabanka Íslands eftir gildistöku laga nr. 92/2019 – skýrsla forsætisráðherra, þingskjal 164
- Hjúskaparlög (aldur hjónaefna, könnunarmenn o.fl.) – stjórnarfrumvarp innanríkisráðherra, þingskjal 165
- Fjárhagslegar viðmiðanir o.fl. (fjárhagslegar viðmiðanir og lykilupplýsingaskjöl) – stjórnarfrumvarp fjármála- og efnahagsráðherra, þingskjal 166
- Ákvörðun nr. 388/2021 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn (fjármálaþjónusta) – stjórnartillaga utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, þingskjal 167
- Samningur milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu árið 2022 – stjórnartillaga utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, þingskjal 168
- Breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands – stjórnartillaga forsætisráðherra, þingskjal 169
- Jöfn meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna (fjölgun mismununarþátta) – stjórnarfrumvarp forsætisráðherra, þingskjal 170
- Fjarskipti o.fl. (áfallaþol fjarskiptaþjónustu og fjarskiptaneta) – stjórnarfrumvarp vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, þingskjal 171