Traust til Alþingis vex
Traust almennings til Alþingis fer vaxandi, samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallups sem mælir árlega traust til helstu stofnana samfélagsins. Traustið mælist nú 36% og hefur aukist um tvö prósentustig frá síðasta ári, þegar það var 34%. Þar áður jókst það um ellefu prósentustig milli áranna 2019 og 2020 en árið 2019 mældist traustið 18%.
Traust til Alþingis hríðféll eftir efnahagshrunið. Þegar Gallup mældi traust til Alþingis skömmu fyrir það, árið 2008, var traustið 42% en hrundi niður í 13% árið 2009 og 9% 2010.