Tilkynningar

Upptaka af opnum fundi um skýrslu umboðsmanns Alþingis

18.10.2018

Upptaka af fundi um skýrslu umboðsmanns Alþingis í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd miðvikudaginn 17. október kl. 9:30. Fundarefnið var skýrsla umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2017.

Gestir fundarins frá umboðsmanni Alþingis voru Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, Maren Albertsdóttir, aðstoðarmaður umboðsmanns, Særún María Gunnarsdóttir skrifstofustjóri og Vilhelmína Ósk Ólafsdóttir, forstöðumaður frumkvæðismála.

Fundurinn var haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis.