<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-08T14:14:16" skst="HallT" tegflm="I" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-08 14:22:42 -->

  <ns:umsýsla fundur="0" lgþ="158" tími="2026-09-08T14:14:16">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þi" nr="7">
      <ns:málsheiti>forseti Íslands setur þingið</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Hinn 28. ágúst síðastliðinn var gefið út svofellt bréf:</ns:mgr>

    <ns:mgr>„Forseti Íslands gjörir kunnugt:</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég hefi ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi
    skuli koma saman til fundar þriðjudaginn 8. september 2026.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Um leið og ég birti þetta er öllum sem setu eiga á Alþingi boðið
    að koma nefndan dag til Reykjavíkur og verður þá Alþingi sett að lokinni
    guðsþjónustu í Dómkirkjunni er hefst kl. 13:30.</ns:mgr>

    <ns:mgr jöfnun="miðja">Gjört á Bessastöðum, 28. ágúst 2026.</ns:mgr>

    <ns:mgr jöfnun="miðja">Halla Tómasdóttir.</ns:mgr>

    <ns:línubil/>

    <ns:mgr jöfnun="hægri">________________________</ns:mgr>

    <ns:mgr jöfnun="hægri">Kristrún Frostadóttir.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman þriðjudaginn 8.
    september 2026.“</ns:mgr>

    <ns:mgr>Samkvæmt bréfi því sem ég hef nú lesið lýsi ég yfir að Alþingi
    Íslendinga er sett.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ágætu alþingismenn. Ég býð ykkur hjartanlega velkomin til
    þings.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Undanfarnar vikur höfum við Íslendingar tekist á um mikilvægt
    framtíðarmál. Við höfum vegið og metið kosti og galla ólíkra leiða og
    tekið afstöðu. Þannig á það að vera í lýðræðissamfélagi. Þótt mjótt hafi
    verið á munum er niðurstaðan skýr og hana ber að virða. Um leið skulum við
    sýna skilning á þeim vonbrigðum og sterku tilfinningum sem niðurstaðan
    vekur hjá mörgum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Lýðræðið byggir á þeirri grundvallarhugsun að valdið liggi hjá
    þjóðinni. Að almenningur fái tækifæri til að taka afstöðu til stórra og
    umdeildra mála er ekki merki um veikleika lýðræðisins. Það er merki um
    styrk þess. Við höfum ástæðu til að treysta okkur sjálfum sem samfélagi.
    Við höfum áður tekist á um stór mál og fundið leiðina áfram saman. Nú
    horfum við fram á veginn. Nú er spurningin ekki lengur hvernig við
    greiddum atkvæði, heldur hvernig samfélag við veljum að skapa
    saman.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Lýðræðislegt samfélag verður ekki til af sjálfu sér. Við mótum það
    á hverjum degi, með því hvernig við tölum saman, hvernig við hlustum og
    hvernig við berum virðingu fyrir þeim sem sjá framtíðina með öðrum augum
    en við sjálf. Við getum valið að gera betur, að láta ekki hörðustu
    raddirnar setja tóninn í samfélaginu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við höfum stundum tilhneigingu til að halda að það sem sameini
    þjóð sé það að vera sammála. En saga Íslands segir aðra sögu. Við höfum
    aldrei verið sammála um allt. Við höfum tekist á um stór mál frá stofnun
    lýðveldisins og raunar allt frá stofnun Alþingis. En þegar okkur hefur
    tekist best til höfum við ekki látið ágreining yfirgnæfa það sem sameinar
    okkur. Við höfum munað að áður en við erum fulltrúar ólíkra skoðana erum
    við samborgarar. Og áður en við erum samborgarar erum við fjölskylda,
    vinir og nágrannar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í síðustu viku létust þrjú ungmenni með sviplegum hætti. Við
    vottum fjölskyldum þeirra, vinum og öllum sem syrgja innilega samúð.
    Slíkur missir snertir okkur öll og minnir okkur með sársaukafullum hætti á
    það sem skiptir mestu máli.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við verðum að taka vel utan um börnin okkar og unga fólkið, hlusta
    á þau og styðja. Því ekkert segir meira um styrk samfélags en hvernig
    börnunum okkar og unga fólkinu líður. Hvernig við tökum utan um hvort
    annað segir líka mikið um það samfélag sem við viljum vera.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þjóðaratkvæðagreiðsla svarar þeirri spurningu sem fyrir þjóðina er
    lögð. En hún svarar ekki spurningunni um hvernig samfélag við viljum vera
    þegar niðurstaðan liggur fyrir. Það svar skrifum við sjálf. Með orðunum
    sem við veljum. Með virðingunni sem við sýnum. Með því að hlusta á hvert
    annað.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Enginn á einkarétt á ástinni til Íslands. Og enginn missir rétt
    sinn til að tilheyra þessari þjóð vegna þess hvernig hann greiddi atkvæði.
    Við veljum ekki alltaf sömu leiðina. En við berum öll ábyrgð á því að
    glata ekki hvert öðru á leiðinni.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Kæru þingmenn. Niðurstaðan liggur fyrir og þjóðin horfir nú til
    Alþingis. Hér mætast ólíkar raddir. Hér er tekist á um hugmyndir,
    forgangsröðun og framtíðarsýn. Þannig á það að vera. Og hér getið þið sýnt
    að það er hægt að vera ósammála af virðingu, að sannfæring og auðmýkt geti
    farið saman, að hægt sé að tala af festu en líka hlusta af einlægni. Því
    þetta hús setur ekki aðeins lög. Það setur líka tón. Og tónn samfélags
    skiptir máli.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Á þjóðhátíðardaginn talaði ég um heimahöfn, stað þar sem við
    finnum öryggi, traust og tengingu. Sama hversu ólíkar leiðir við veljum
    eigum við öll sömu heimahöfn. Sú heimahöfn er Ísland. Hún tekur á móti
    okkur öllum. Og hún minnir okkur á að við berum öll ábyrgð á að halda
    henni öruggri, traustri og opinni fyrir komandi kynslóðir.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég lít svo á að það sé meðal mikilvægustu verkefna
    forsetaembættisins að skapa rými þar sem fólk getur komið saman og hlustað
    hvert á annað. Nú vinnur breiður hópur fólks að undirbúningi Samtals
    þjóðarinnar í október. Tilgangurinn er ekki að verða sammála um allt.
    Skoðanaskipti eru hluti af lýðræðinu og geta raunar verið kveikja
    samtalsins. Ungt fólk mun leiða samtölin í framhaldsskólum landsins og
    ólíkar kynslóðir setjast við sama borð; ekki til að sannfæra hvert annað
    heldur til að hlusta og skilja, horfa til alls þess sem sameinar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Kæru þingmenn. Á þessu þingi bíða ykkar stór og mikilvæg verkefni.
    Þið getið ákveðið hvernig þið mætið þeim: Með skýrri sannfæringu og opnum
    hug. Með hugrekki til að hlusta. Og með auðmýkt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vona að þegar börn okkar og barnabörn líta til baka á þennan
    tíma muni þau ekki fyrst horfa til þeirra mála sem skiptu okkur í
    fylkingar, heldur kveikja í þeim von um veröld betri.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Kæru þingmenn. Og kæru Íslendingar. Veljum samtalið. Veljum
    virðinguna. Veljum hvert annað. Mótum samfélag þar sem fólk getur tekist á
    um stór mál án þess að glata hvert öðru. Við megum velja ólíkar leiðir en
    eigum áfram sömu heimahöfn: Ísland.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég óska þingmönnum og Alþingi allra heilla og bið ykkur að rísa úr
    sætum og minnast ættjarðarinnar.</ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:atburður>[Þingmenn risu úr sætum og forsætisráðherra,
    <ns:feitletrað>Kristrún Frostadóttir</ns:feitletrað>, mælti: „Heill
    forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.“ Tóku þingmenn undir þau orð með
    ferföldu húrrahrópi.]</ns:atburður></ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:atburður>[Sönghópurinn við tjörnina flutti Þitt fyrsta bros.
    Lag: Gunnar Þórðarson. Ljóð: Ólafur Haukur
    Símonarson.]</ns:atburður></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>