<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-08T14:27:48" skst="ÞSv" tegflm="F" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-08 14:34:35 -->

  <ns:umsýsla fundur="0" lgþ="158" tími="2026-09-08T14:27:48">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þi" nr="8">
      <ns:málsheiti>ávarp forseta Alþingis</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Hv. þingmenn. Ég býð ykkur öll velkomin til starfa á 158.
    löggjafarþingi sem nú er að hefjast og er hið þriðja á þessu kjörtímabili.
    Gestum Alþingis við þingsetningarathöfnina fagna ég einnig og kasta góðri
    kveðju á starfsfólk skrifstofu Alþingis sem mun leggjast á árarnar með
    okkur á komandi þingi eins og endranær.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Sumarið 2026 var tíðindasamt í pólitísku tilliti á Íslandi. Því
    olli að þann 29. ágúst fór fram þjóðaratkvæðagreiðsla um það hvort haldið
    skyldi áfram samningaviðræðum um umsókn Íslands um aðild að
    Evrópusambandinu. Þetta er okkur allt í fersku minni og einnig
    niðurstaðan, sem varð að endurvekja ekki umsóknina að svo komnu máli.
    Kjósendur sýndu málefninu áhuga og kjörsókn var mjög góð. Í
    þjóðaratkvæðagreiðslunni fékkst afgerandi niðurstaða um afstöðu meiri
    hluta kjósenda, niðurstaða sem Alþingi ber að virða.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Umræður urðu miklar og oftast góðar og upplýsandi þótt einnig bæri
    því miður á rangfærslum. En hin almenna umræða bar einnig ákveðin
    hættumerki sem vert er að staldra við. Svo virðist, því miður, sem ofstopi
    og hótanir í garð forystufólks í stjórnmálum séu að verða daglegt brauð.
    Það vekur eftirtekt að þeir stjórnmálamenn sem helst fá að kenna á slíku
    framferði eru konur. Mál er að linni. Eigi lýðræðissamfélagið að standa
    undir nafni verða þátttakendur í opinberri umræðu, sem meðal annars fer
    fram í athugasemdakerfunum á vefnum, að ráða við verkefnið. Það er undir
    hverju og einu okkar komið að leggja til málanna á þessum vettvangi þannig
    að gagn sé að en ekki skaði.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frá árinu 1992 hefur verið við lýði samstarfsvettvangur forseta
    þjóðþinga Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna, gjarnan nefndur NB8.
    Alþingi hélt í ágústmánuði árlegan fund þjóðþinga NB8-ríkjanna og þar var
    meðal annars var fjallað um stöðu stríðsins í Úkraínu og stuðning
    NB8-ríkjanna við baráttu úkraínsku þjóðarinnar gegn innrásarhernum sem
    staðið hefur yfir í vel á fimmta ár. Á sama tíma var hér staddur í
    opinberri heimsókn í boði forseta Alþingis Ruslan Stefanchuk, forseti
    þjóðþings Úkraínu, og ítrekaði forseti Alþingis við hann tvímælalausan
    stuðning Íslands við málstað Úkraínu og fórnarlömb stríðsins, ekki síst
    úkraínsk börn sem búa við öryggisleysi og styrjaldarógn í sínu daglega
    lífi. Samstarfið við NB8-ríkin, okkar nánustu samverkalönd, er mikilvægur
    vettvangur fyrir umræður um ýmis brýn málefni samtímans, svo sem notkun
    gervigreindar og áhrif hennar og stafrænnar tækni á hlutverk og störf
    þingmanna, um kynjajafnrétti og um stöðu kjörinna fulltrúa í samfélaginu,
    hótanir og hatursorðræðu í þeirra garð.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þótt að mörgu sé að hyggja fyrir kjörna fulltrúa á Alþingi megum
    við ekki gleyma því að líta okkur nær og huga að starfsháttum hér innan
    húss. Starfsumhverfið á Alþingi þarf að geta breyst og þróast í takt við
    tímann. Á haustþinginu mun hefjast tilraun um nýtt fyrirkomulag
    þingvikunnar sem forseti hefur mikla trú á að geti gert þennan vinnustað
    betri og skilvirkari. Forseti vonar að það gangi eftir og að þingmenn beri
    sömu væntingar til þessa nýja skipulags og ég. Það er innleitt í
    tilraunaskyni nk. mánudag, stendur á haustþingi og verður svo metið að
    tilrauninni lokinni.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Starfshættir hér á Alþingi ráðast að miklu leyti af lögum um
    þingsköp Alþingis. Þau hljóta einnig að breytast í takt við nýja tækni,
    væntingar þingmanna um skaplegan vinnutíma og kröfur samfélagsins um
    skilvirkni þingsins. Í haust mun ég beita mér fyrir því að farið verði
    ofan í saumana á þeim breytingum sem gerðar hafa verið á þingskapalögunum
    á þeim rúma aldarfjórðungi sem liðinn er frá síðustu aldamótum. Kannað
    verður hvernig þessar breytingar hafa reynst og hvort þær þjónuðu
    markmiðum sínum með viðunandi hætti. Leitað verður liðsinnis ykkar, hv.
    þingmenn, og auðvitað þingflokka hér á Alþingi, við þessa athugun á
    þingsköpunum og ég bið ykkur að bregðast vel við þeirri beiðni. Verði
    niðurstaðan á þeirri skoðun sú að það sé áhugi á því að gera tilteknar
    breytingar á reglum og þingskaparlögum og vilji fyrir því hér á Alþingi
    til að koma slíkum breytingum til leiðar mun ég stuðla að því að
    endurskoðun verði hafin á þingskaparlöggjöfinni á næsta ári.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Að morgni 28. ágúst sl. lést Haraldur V. Noregskonungur í Ósló.
    Hann var á nítugasta aldursári. Haraldur V. ríkti í Noregi frá 17. janúar
    1991 til hinsta dags. Hann var einkar vinsæll og vel látinn. Haraldur V.
    sótti Ísland heim, bæði meðan hann var ríkisarfi og einnig eftir að hann
    tók við ríki, og voru þau Haraldur konungur og Sonja drottning hér jafnan
    aufúsugestir. Forseti Alþingis sendir forseta Stórþingsins og þingmönnum
    þar, konungsfjölskyldunni og norsku þjóðinni samúðarkveðjur vegna fráfalls
    Haraldar V. Noregskonungs.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þessum þingfundi verður brátt frestað og ég bið þingmenn og gesti
    Alþingis að þiggja veitingar í Smiðju í tilefni dagsins. Ég bið hæstv.
    forsætisráðherra að ganga fremstan með mér úr þingsalnum til
    Smiðju.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>