<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-08T15:30:48" skst="ÞSv" tegflm="F" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-08 15:32:35 -->

  <ns:umsýsla fundur="1" lgþ="158" tími="2026-09-08T15:30:48">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="mi" nr="4">
      <ns:málsheiti>Minnst látins fyrrverandi alþingismanns, Guðmundar
      Karlssonar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Guðmundur Karlsson, fyrrverandi alþingismaður, lést á
    Landspítalanum hér í Reykjavík 1. ágúst síðastliðinn, níræður að
    aldri.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Guðmundur var fæddur í Vestmannaeyjum 9. júní 1936. Foreldrar hans
    voru hjónin Karl Guðmundsson, skipstjóri og útgerðarmaður, og Unnur
    Jónsdóttir húsmóðir. Guðmundur ólst upp í Vestmannaeyjum. Hann hélt til
    náms í Menntaskólanum á Laugarvatni og lauk þaðan stúdentsprófi árið 1957.
    Hann stundaði síðan laganám við Háskóla Íslands um tveggja ára
    skeið.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Guðmundur varð ungur að árum stjórnandi í fiskvinnslufyrirtækjum í
    heimabyggð sinni, Vestmannaeyjum. Þegar eldgosið hófst þar í janúar 1973
    var Guðmundur í forystusveit þeirra sem unnu að björgunarstörfum og varð
    síðar framkvæmdastjóri Viðlagasjóðs í Eyjum við uppbyggingu kaupstaðarins
    í kjölfar gossins. Á árunum 1974 og 1975 dvaldist hann í Japan við
    markaðsstörf á vegum Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Guðmundur Karlsson naut trausts samferðamanna fyrir störf sín og
    framgöngu. Hann stefndi ekki á pólitískan frama en Sjálfstæðismenn í
    Vestmannaeyjum völdu hann til framboðs, fyrst til bæjarstjórnar og síðar
    til Alþingis 1978–1983 sem fulltrúa sinn í Suðurlandskjördæmi. Hann sat á
    sex löggjafarþingum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við stofnun Fiskistofu haustið 1992 varð Guðmundur forstöðumaður
    veiðieftirlits stofnunarinnar fram til starfsloka sinna árið
    2006.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég bið þingheim að minnast Guðmundar Karlssonar, fyrrverandi
    alþingismanns, með því að rísa úr sætum. — <ns:atburður>[Þingmenn risu úr
    sætum.]</ns:atburður></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>