<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-09T19:41:25" skst="ÞSv" tegflm="F" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-09 19:43:15 -->

  <ns:umsýsla fundur="2" lgþ="158" tími="2026-09-09T19:41:25">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ra" nr="14">
      <ns:málsheiti>Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Nú flytur hæstv. forsætisráðherra stefnuræðu sína fyrir hönd
    ríkisstjórnarinnar og fram munu fara umræður um hana sem verður útvarpað
    og sjónvarpað héðan úr Alþingishúsinu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Umræðurnar skiptast í tvær umferðir. Forsætisráðherra hefur 12
    mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra
    hafa sex mínútur í fyrri umferð og í seinni umferð hafa þingflokkarnir
    einnig sex mínútur hver. Þingmaður utan þingflokka talar í lok fyrri
    umferðar og hefur fimm mínútur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Röð flokkanna er í báðum umferðum þessi: Samfylkingin,
    Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn, Miðflokkurinn, Flokkur fólksins og
    Framsóknarflokkur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ræðumenn fyrir Samfylkinguna verða Kristrún Frostadóttir
    forsætisráðherra í fyrri umferð og Alma D. Möller heilbrigðisráðherra í
    seinni umferð.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Fyrir Sjálfstæðisflokk tala Guðrún Hafsteinsdóttir, 2. þm.
    Suðurk., í fyrri umferð og í seinni umferð Jens Garðar Helgason, 3. þm.
    Norðaust.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ræðumenn Viðreisnar verða í fyrri umferð Þorgerður Katrín
    Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Daði Már Kristófersson, fjármála- og
    efnahagsráðherra, í þeirri seinni.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ræðumenn Miðflokksins verða Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 2. þm.
    Norðaust., í fyrri umferð og Bergþór Ólason, 4. þm. Suðvest., í seinni
    umferð.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Fyrir Flokk fólksins tala Inga Sæland, mennta- og
    barnamálaráðherra, í fyrri umferð og Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og
    húsnæðismálaráðherra, í seinni umferð.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Fyrir Framsóknarflokk tala í fyrri umferð Stefán Vagn Stefánsson,
    5. þm. Norðvest., og í seinni umferð Þórarinn Ingi Pétursson, 10. þm.
    Norðaust.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>