<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="forsrh." frhr="0" id="r2026-09-09T19:43:44" skst="KFrost" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-09 19:57:02 -->

  <ns:umsýsla fundur="2" lgþ="158" tími="2026-09-09T19:43:44">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ra" nr="14">
      <ns:málsheiti>Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Hv. þingmenn. Velkomin aftur til verka á Alþingi
    Íslendinga. Ég vil byrja á að þakka gott samstarf og góðan árangur á
    síðasta löggjafarþingi. Ég óska þess að við leggjumst öll á eitt hér á
    komandi þingvetri við að rísa undir ábyrgð okkar áfram í þágu þjóðar til
    að bæta daglegt líf landsmanna og styrkja Ísland. Þetta er sameiginlegt
    verkefni okkar þvert á alla flokka. Hvernig sem vindar blása í stjórnmálum
    eða í hagkerfi heimsins þá berum við alltaf ábyrgð á eigin árangri og
    framtíð Íslands.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil líka nýta þetta tækifæri til að þakka þjóðinni fyrir að
    svara kalli lýðræðisins í sumar með því að efna til opinnar umræðu og auka
    meðvitund okkar um stefnu og stöðu Íslands í heiminum. Í mínum huga er
    ljóst að þjóðaratkvæðagreiðslan þann 29. ágúst var sigur fyrir lýðræðið í
    landinu hvernig sem á það er litið. Í fyrsta lagi vegna þess að
    kosningaþátttaka var söguleg, spurningin einföld og svarið skýrt.
    Ríkisstjórnin mun ekki hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný.
    Þeirri ákvörðun hefur þegar verið komið skriflega á framfæri við
    ráðherraráð og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Í öðru lagi vegna þess
    að með því að efna þetta loforð til þjóðarinnar, með því að treysta
    þjóðinni til að taka þessa ákvörðun, höfum við lagt okkur fram um að græða
    gömul sár og efla aftur traust til íslenskra stjórnmála. Loforð gefin,
    loforð efnd. Í þriðja lagi vegna þess að þannig höfum við markað skýrari
    stefnu fyrir Ísland til næstu ára varðandi samskipti við Evrópu og
    umheiminn sem mun meðal annars byggja á því að við pössum upp á samninginn
    um Evrópska efnahagssvæðið af fullri ábyrgð og alvöru þó að Ísland taki
    ekki skrefið til fullrar aðildar að Evrópusambandinu. En með því höfum við
    ekki sagt nei við Evrópu eða nei við því að halda áfram nánu og góðu
    samstarfi við Evrópusambandið, öðru nær. Við erum ekki að hætta eða hörfa
    frá neinu sem verið hefur enda var hvorki að því spurt á kjörseðlinum né
    að því stefnt hjá þessari ríkisstjórn. Eftir stendur að þjóðin fékk valdið
    og átti gagnlega umræðu í sumar án þess þó að taka tíma eða athygli frá
    störfum ríkisstjórnar, stjórnkerfis eða Alþingis að öðru leyti. Það er
    gott.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Nú horfum við fram á veginn, ein þjóð í einu landi. Við sem njótum
    þess trausts og heiðurs að sitja á Alþingi skulum spyrja okkur við upphaf
    þings: Hvernig legg ég mitt af mörkum á þessum vetri til að bæta daglegt
    líf landsmanna og styrkja Ísland? Því þó að hvarvetna blasi við okkur
    viðamikil verkefni á hverri stundu þá höfum við ítrekað sýnt að saman erum
    við mikils megnug. Þegar við einsetjum okkur að leysa mál og ganga til
    verka. Sjáið hverju við höfum áorkað saman sem þjóð núna á skömmum tíma.
    Eftir erfið ár, heimsfaraldur, jarðhræringar og stöðnun í stjórnmálum sem
    ríkti um nokkurra ára skeið. Leiðum hugann að stöðunni eins og hún var
    orðin árið 2024. Skoðum þær breytingar sem orðið hafa til batnaðar fyrir
    venjulegt fólk. Við höfum endurheimt öryggi og mannvirðingu fyrir fólkið
    sem byggði landið þegar heilsan brestur eftir langa ævi. Þið munið hvernig
    ástandið var orðið í heilbrigðiskerfinu okkar og á biðlistum eftir
    hjúkrunarrými. Alltof margir hafa upplifað aðstæður við kveðjustund með
    ástvini sem eru óviðunandi í ríku velferðarsamfélagi. Við vitum að það er
    enn verk að vinna. En nú berast þær góðu fréttir frá Landspítala að við
    séum loksins að snúa þessari þróun við og að staðan hafi „ekki verið betri
    það sem af er þessari öld“, með leyfi forseta, þegar kemur að því að hlúa
    að fólkinu sem byggði landið. Vegna þess að saman höfum við náð árangri
    með þjóðarátaki í umönnun eldra fólks og verkin tala.<!--https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/fjolgun-hjukrunarryma-gjorbreytt-stada-a-landspitala/-->
    Við erum rétt að byrja; með stórfjölgun hjúkrunarrýma um land allt,
    framkvæmdum við stækkun Sjúkrahússins á Akureyri sem hófust í vor og við
    nýja matsdeild bráðamóttöku Landspítala sem á að taka í notkun strax í
    haust. Þrisvar sinnum fleiri stunda nú sérnám í heimilislækningum á
    Íslandi en fyrir 10 árum. Þá hefur þegar tekist að fjölga Íslendingum með
    fastan heimilislækni í viðkvæmustu hópunum til að fólk geti átt fastan
    tengipunkt við heilbrigðiskerfið og fundið fyrir öryggi í daglegu
    lífi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við höfum auðveldað lífsbaráttuna fyrir öryrkja og tekjulægra fólk
    með því að festa í lög að lífeyrir frá Tryggingastofnun hækki alltaf í
    takt við laun í landinu og með fleiri aðgerðum. Þetta er breyting sem um
    munar fyrir fjölda fólks sem hefur misst starfsorku eða vill áhyggjulaust
    ævikvöld en þarf að eiga til hnífs og skeiðar rétt eins og við sem erum
    vinnufær. Þarna hefur náðst árangur og verkin tala. Við höfum lækkað
    raforkureikninginn í dreifbýli frá og með 1. júlí og líka fyrir heimili á
    köldum svæðum. Það er sannarlega aðgerð sem munar um, ekki síst í bókhaldi
    bænda og fyrirtækja í dreifðum byggðum. Verkin tala og við vinnum samkvæmt
    því að allir Íslendingar eigi auðlindir þessa lands saman.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Horfum á Ísland allt. Hvernig var ástand innviða hringinn í
    kringum landið þegar síðast var boðað til Alþingiskosninga og þjóðin kaus
    nýtt upphaf? Það eru ekki nema tvö ár síðan. Orkumálin voru í algjöru
    stoppi. Samgönguáætlun hafði ekki verið samþykkt, eins og lög kveða á um,
    viðhaldi var ekki sinnt á vegum og vetrarþjónusta vanfjármögnuð. Þá höfðu
    ekki hafist framkvæmdir við ný jarðgöng frá 2017 og innviðafélag var ennþá
    hugmynd. Hvað höfum við gert í þessum málum á innan við tveimur árum? Við
    höfum komið Íslandi aftur á rétta braut með því að styrkja innviðina sem
    tengja Ísland allt, auka öryggi og leggja grunn að verðmætasköpun til
    framtíðar í hverjum einasta landshluta og fyrir hvern einasta Íslending;
    með því að láta verkin tala í orkumálum, með því að stórauka fjárfestingu
    í samgöngum og í viðhaldi vega, fullfjármagna vetrarþjónustu og með því að
    samþykkja nýja samgönguáætlun fyrir Ísland á fyrsta heila þingvetri
    þessarar ríkisstjórnar. Í gær var tilkynnt að undirbúningsframkvæmdir
    vegna Fljótaganga hefjast strax í haust. Á næsta ári byrjum við loksins
    aftur að bora jarðgöng í þessu landi. Við höfum þegar stofnað
    innviðafélagið Göng og brú til að fjármagna stærri samgönguframkvæmdir á
    borð við Sundabraut og tvöföldun Hvalfjarðarganga og í næstu viku mun ég
    ávarpa fjárfestadag félagsins þar sem verða fulltrúar frá sumum af stærstu
    verkfræðistofum og innviðafjárfestum í Evrópu vegna áhuga þeirra á að koma
    þessum verkefnum loksins í framkvæmd. Þetta er árangur Alþingis og
    samfélagsins alls sem ætti að veita okkur innblástur til að leggjast öll á
    eitt og sækja fleiri sigra saman fyrir Ísland.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það sama mætti segja um fleiri málaflokka. Ég nefni sem dæmi
    útlendingamál. Flest okkar muna hvernig staðan var á þeim fyrir ekki svo
    löngu. En nú er staðan þessi: Við höfum endurheimt styrka stjórn í
    útlendingamálum og skapað breiða sátt í samfélaginu um þennan viðkvæma
    málaflokk með því að ganga til verka af festu og vandvirkni við að koma á
    kerfi sem er réttlátt en raunsætt og gætir samræmis við reglur í
    nágrannaríkjum okkar. Þessum árangri höfum við náð á skömmum tíma án
    upphrópana og upphlaupa í ríkisstjórn. Nú í vetur höldum við áfram með
    heildarendurskoðun á veitingu dvalarleyfa og á reglum um brottvísanir því
    að verkin tala.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við höfum stöðvað stjórnlausar verðhækkanir á húsnæðismarkaði.
    Þannig stöndum við með fjölskyldum og ungu fólki sem vill gera drauminn um
    eigið húsnæði að veruleika á Íslandi. Þið munið hvernig verðið hækkaði og
    hækkaði árum saman langt umfram verðbólgu þannig að fyrstu kaupendum
    fækkaði og draumurinn um eigið húsnæði varð sífellt fjarlægari ár frá ári.
    Ekki misskilja mig. Þessi markaður er ennþá bilaður og við ætlum að gera
    ennþá betur. En hvaða árangur hefur þó náðst á tveimur árum? Í stað
    verulegra hækkana umfram verðbólgu hefur húsnæðisverð farið lækkandi að
    raunvirði. Nú sjáum við hæsta hlutfall fyrstu kaupenda frá því fyrir
    efnahagshrunið árið 2008 enda gripum við til aðgerða og verkin tala. Þrátt
    fyrir háa vexti og þrátt fyrir þráláta verðbólgu þá var greint frá því í
    fréttum fyrir helgi að vanskil heimila hafa aldrei verið minni svo langt
    sem gögnin ná. Greining þjóðhagsráðs frá því í sumar sýnir að frá árinu
    2024 hefur kaupmáttur aukist hjá öllum tekjuhópum, í öllum tekjutíundum og
    óháð stöðu á húsnæðismarkaði.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í málefnum barna og ungmenna höfum við látið hendur standa fram úr
    ermum en það verður þó að segjast, í fullri hreinskilni, að betur má ef
    duga skal. Sá árangur hefur þó náðst að nú eru engin börn eða ungmenni á
    bið eftir plássi á meðferðarheimili á vegum stjórnvalda. Þessi málaflokkur
    verður í forgangi hjá ríkisstjórninni í vetur með heildarendurskoðun á
    barnaverndarlögum, áherslu á að stytta biðtíma barna eftir þjónustu og
    skimun fyrir ofbeldi sem hefst í grunnskólum um land allt í haust. Þá
    leggjum við fram fyrstu ungmennastefnu Íslands, þingsályktun um aðgerðir
    gegn fátækt barna og síðast en ekki síst aðgerðaáætlun menntastefnu til
    ársins 2030.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Á síðasta ári bætti ríkið 3 milljörðum aukalega á ári í þriðja
    stigs þjónustu við börn og ungmenni með samkomulagi við sveitarfélögin til
    að þau sinni fyrstu og annars stigs þjónustu betur ásamt frístundastarfi
    fyrir unga fólkið okkar. Þetta skiptir máli. Í vor settum við lög um
    símafrí í skólum. Í haust leggjum við fram frumvarp um 15 ára
    aldurstakmark á samfélagsmiðlum. Þá mun ég sem forsætisráðherra mæla fyrir
    lagafrumvarpi á Alþingi um að þeir Íslendingar sem hafa sætt
    óforsvaranlegri meðferð sem börn á ábyrgð hins opinbera, beint eða óbeint,
    muni eiga þess kost að sækja um sanngirnisbætur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Háttvirtir þingmenn. Virðing endurheimt á efri árum.
    Fleiri heimilislæknar og betra heilbrigðiskerfi. Lægra orkuverð í
    dreifbýli. Lægra húsnæðisverð og fleiri fyrstu kaupendur.
    Innviðauppbygging um land allt. Orkuöflun og viðhald vega. Stjórn á
    útlendingamálum, ekkert barn á bið eftir meðferðarheimili á vegum
    stjórnvalda og aðgerðir til að létta lífsbaráttuna fyrir öryrkja og
    tekjulægra eldra fólk. Þetta eru breytingar sem bæta daglegt líf fólks um
    land allt á hverjum einasta degi og styrkja Ísland. Allt þetta hefur
    tekist um leið og við höfum tekið erfiðar ákvarðanir í ríkisfjármálum með
    hagræðingu, fækkun verkefna, fækkun ráðuneyta og fækkun ríkisstofnana. Því
    að nú höfum við loksins, í fyrsta skipti í að verða áratug, lagt fram
    hallalaus fjárlög á Íslandi til að hætta að reka ríkið á yfirdrætti svo
    ríkið hætti að kynda undir þenslu og verðbólgu, eins og verið hefur, enda
    er verðbólgan vissulega enn of mikil og stendur í 5,6% yfir meðalverðbólgu
    frá aldamótum sem hefur verið um 5%. Já, við getum betur. Og já, hallalaus
    fjárlög eru nauðsynleg núllstilling í ríkisrekstrinum. Nýtt upphaf í
    efnahagslífi þjóðarinnar sem þingheimur allur ætti að fagna og sameinast
    um þvert á flokka.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Kæru landsmenn. Við sögðumst ætla að laga Ísland. Við erum að laga
    Ísland með því að laga fyrst grunninn. Það tekur tíma en það er að takast.
    Á þeim grunni getum við síðan loksins í sameiningu litið til lengri
    framtíðar fyrir landið okkar. Því þrátt fyrir sviptivinda í hagkerfi
    heimsins sem berja nú á og berast hingað til lands þá erum við mikils
    megnug. Ekki síst þegar við gætum þess, hvert og eitt, að festast ekki í
    pólitísku þrasi um fortíðina heldur tökum höndum saman um þá framtíð sem
    við berum ábyrgð á og sköpum hana hér á Íslandi. Ein þjóð í einu
    landi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Gerum þetta að verkmiklum vetri á Alþingi, hv. þingmenn, landi og
    þjóð til heilla.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>