<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-09T19:57:13" skst="GHaf" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-09 20:05:03 -->

  <ns:umsýsla fundur="2" lgþ="158" tími="2026-09-09T19:57:13">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ra" nr="14">
      <ns:málsheiti>Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Kæru landsmenn. „Við vitum að aukið frelsi
    leysir bundin öfl úr læðingi og eykur þjóðinni þrótt og velsæld.“ Þetta
    sagði Ólafur Thors hér á Alþingi fyrir rúmum sjötíu árum. Þessi orð eiga
    enn við. Trúin á frelsi einstaklingsins og framtak fólksins er enn
    kjarninn í sjálfstæðisstefnunni. Stjórnvöld geta leyst þann kraft úr
    læðingi. Þau geta líka bundið hann niður. Nú nálgast kjörtímabilið
    hálfleik. Ríkisstjórnin hét lægri verðbólgu og lægri vöxtum. Hefur hún
    staðið við það? Nei, hún hefur ekki gert það. Verðbólgan er 5,6%.
    Stýrivextir eru 8%. Landsframleiðslan dróst saman um 1,1% á öðrum
    ársfjórðungi frá sama tíma í fyrra. Síðasta haust boðaði forsætisráðherra
    verðmætasköpunarhaust. Það varð að vaxtahækkunarvori og nú stefnir í
    verðbólguvetur. Já, verkin tala. En þau segja allt aðra sögu en
    forsætisráðherra sagði hér áðan.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Góðir landsmenn. Stöðugleiki er eitt stærsta velferðarmálið. Að
    bæta daglegt líf fólks hlýtur að byrja á því að létta vaxtabyrðina og ná
    niður verðbólgunni. Við fögnum því sem vel er gert. En fyrirheit verða að
    skila sér alla leið til fólksins í landinu. Það er rétt að stefna að
    hallalausum fjárlögum en fjárlagafrumvarp er áætlun. Ég þekki það úr
    atvinnurekstri að uppgjörið er það sem skiptir öllu máli. Það fagnar
    enginn góðri áætlun. Forsætisráðherra talar um að laga Ísland. Það er
    engin þörf á að laga Ísland. Það sem þarf að laga er efnahagsstjórn
    ríkisstjórnarinnar og létta byrðarnar á fólkinu sem vill sækja
    fram.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Fjárlög þessa árs gerðu ráð fyrir 28 milljarða króna halla. Nú
    stefnir í að hallinn verði um 68 milljarðar. Þegar skekkjan er 40
    milljarðar er ekki ástæða til að fagna of snemma. Nú á að sækja 23
    milljarða með nýjum skattahækkunum. Þau boða aðhald sem felst í því að
    fresta útgjöldum þar til síðar. Það er ekki sparnaður að geyma reikninginn
    fram á næsta ár.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Krónutölugjöld ríkisins eiga almennt að hækka um 5,2%, meira en
    tvöfalt verðbólgumarkmið Seðlabankans. Bankaskatturinn hækkar og
    kílómetragjaldið líka. Seðlabankinn hefur þegar bent á þátt opinberra
    gjaldahækkana í aukinni verðbólgu. Ríkisstjórnin ætlar að rétta
    ríkisfjármálin af með því að gera meiri kröfur til fólksins.
    Sjálfstæðisflokkurinn vill rétta þau af með því að gera meiri kröfur til
    ríkisins. Þar liggur skýr munur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Stjórnarsamstarfið virðist ganga út á að ef einn flokkur fær sitt
    verði næsti að fá sitt líka, hvort sem málin fara saman eða ekki.
    ESB-vegferðin tók tíma, orku og fé. Þann 29. ágúst hafnaði þjóðin því að
    hefja aðildarviðræður á ný. Það var skýr, lýðræðisleg niðurstaða. Þjóðin
    sendi ríkisstjórninni skilaboð um að við ætlum að ráða málum okkar sjálf
    og að ríkisstjórnin ætti að hugsa fyrst og fremst um þau verkefni sem hafa
    setið á hakanum hér heima fyrir. Mikið vildi ég að ríkisstjórnin hlustaði
    nú á þennan vilja þjóðarinnar. Stærsta loforð ríkisstjórnarinnar var að ná
    niður verðbólgu og vöxtum. Þangað hefði átt að beina kröftunum sem fóru í
    þessa vegferð. Sá tími kemur ekki aftur. Við eigum áfram að rækta
    EES-samninginn og tengsl við vinaþjóðir beggja vegna Atlantshafsins.
    Fullveldi fylgir ábyrgð. Enginn annar vinnur heimavinnuna fyrir
    okkur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Góðir landsmenn. Ég finn engan uppgjafartón þegar ég hitti fólkið
    í landinu. Fólk vill koma fyrirtækjum á fót og skapa störf. Ungt fólk vill
    eignast heimili og festa rætur. Það biður um stöðugleika og svigrúm til að
    láta áform sín rætast. Tækifærin eru alls staðar en ríkisstjórnin grípur
    þau ekki. Við erum fámenn þjóð en við höfum aldrei hugsað smátt. Íslensk
    fyrirtæki keppa við þau bestu í heiminum og selja hugvit, tækni, matvæli
    og þjónustu um allan heim. Þau skapa störfin og útflutningstekjurnar sem
    standa undir lífskjörum okkar og íslensk fyrirtæki eiga það skilið að við
    sköpum þeim sem best skilyrði svo þau geti vaxið.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Á þessu ári féll Ísland um sjö sæti í alþjóðlegri
    samkeppnishæfnimælingu IMD. Það snertir okkur öll. Samkeppnishæfnin ræður
    því hvort störfin verða til hér á landi eða annars staðar, hvort fyrirtæki
    fjárfesta á Íslandi, ráða fleira fólk og greiða góð laun. Ríkisstjórnin
    svarar með hærri sköttum og gjöldum. Hún talar um verðmætasköpun en kemur
    fram við atvinnulífið eins og óþrjótandi skattstofn. Sjálfstæðisflokkurinn
    vill að fólk haldi meira eftir af því sem það aflar og að fyrirtækin hafi
    svigrúm til fjárfestinga og nýrra starfa. Þannig styrkjum við
    samkeppnishæfni Íslands og bætum lífskjör. Við höfum lagt til að
    gjaldskrár ríkisins hækki ekki umfram 2,5% verðbólgumarkmið og að dregið
    verði úr skattahækkunum. Við viljum fara yfir ríkisreksturinn lið fyrir
    lið og forgangsraða í þágu grunnþjónustunnar. Atvinnulífið stendur undir
    velferðinni. Þess vegna er öflugt atvinnulíf hagsmunamál hverrar einustu
    fjölskyldu í landinu. Við viljum að fleiri sjái sér framtíð í að stofna
    fyrirtæki á Íslandi og að þau sem hér starfa hafi ástæðu til að vaxa hér
    áfram.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Sjálfstæðisstefnan sameinar rétt þjóðarinnar til að ráða sínum
    málum og rétt fólksins til að ráða sínu lífi. Við viljum ríki sem þjónar
    fólkinu. Við höfum áður rutt brautina fyrir uppbyggingu atvinnulífsins. Nú
    þarf að gera það aftur. Ég leiði Sjálfstæðisflokk sem treystir fólkinu.
    Við erum tilbúin að taka ábyrgð á þeirri stefnubreytingu. Ísland býr yfir
    miklum krafti. Hann er hjá fólkinu sem vinnur, skapar og heldur
    samfélaginu gangandi á hverjum degi. Stjórnvöld eiga að leysa þann kraft
    úr læðingi. Það er verkefnið sem bíður. Við höfum trú á Íslandi og nú þarf
    ríkisstjórnin að hafa trú á Íslendingum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>