<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="utanrrh." frhr="0" id="r2026-09-09T20:05:12" skst="ÞKG" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-09 20:12:41 -->

  <ns:umsýsla fundur="2" lgþ="158" tími="2026-09-09T20:05:12">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ra" nr="14">
      <ns:málsheiti>Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Kæru landsmenn. Það skiptir máli hvernig við í
    stjórnmálunum bregðumst við, bæði þegar vilji okkar nær fram að ganga en
    líka þegar hann gerir það ekki. Íslenska þjóðin tók ákvörðun. Meiri hluti
    kjósenda sagði nei við því að hefja samningaviðræður við Evrópusambandið
    að nýju og við virðum þá niðurstöðu. Og hvað var ríkisstjórnin að gera?
    Ríkisstjórnin, leidd af þremur konum, efndi loforð, reyndar loforð sem
    fyrri ríkisstjórn sveik. Við stóðum við okkar. Þjóðaratkvæðagreiðslan
    snerist ekki um það hvernig Ísland á að vera. Sú trú að Ísland eigi að
    vera frjálslynt og umbótasinnað Evrópuríki er jafn gild í dag og hún var
    fyrir kosningarnar. Og við þau sem fögnuðu sérstaklega niðurstöðunni
    erlendis; Le Pen, Farage og Salvini og þingmenn AfD, öfgaflokksins í
    Þýskalandi, sem eru reyndar skoðanasystkini sumra ákveðinna
    stjórnarandstöðuþingmanna hér inni, vil ég segja: Þið fáið ekki að
    skilgreina fyrir hvað íslenska þjóðin stendur. Niðurstaða
    þjóðaratkvæðagreiðslunnar breytir hvorki gildum okkar Íslendinga né
    áratugautanríkisstefnu okkar. Ísland mun áfram standa með alþjóðalögum,
    friðhelgi landamæra og sjálfsákvörðunarrétti þjóða. Við munum áfram beita
    rödd okkar í þágu jafnréttis fyrir minnihlutahópa og afneitun
    loftslagsbreytinga er ekki á dagskrá. Við stöndum áfram staðfastlega með
    Úkraínu og rétt eins og ég sagði áðan, nákvæmlega, við Selenskí forseta á
    fundi mínum, löngum og góðum, í Keflavík: Ísland stendur með Úkraínu. Að
    sjálfsögðu stendur Ísland með Grænlandi þótt fyrrum pótintátar þessa lands
    vilji að við liggjum lágt. En ekki síst þá stöndum við með sjálfum okkur
    sem sjálfstæð og fullvalda þjóð og það eru skýr skilaboð til umheimsins.
    Og vel að merkja: Við erum áfram hluti af hinni evrópsku
    fjölskyldu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Þjóðaratkvæðagreiðslan var stórt mál, stórt
    almannahagsmunamál, í takt við grunnstef Viðreisnar um að almannahagsmunir
    séu settir framar sérhagsmunum. Fyrst samningaviðræður við Evrópusambandið
    eru ekki sú leið sem þjóðin vill fara verðum við að sjálfsögðu að ná
    markmiðum okkar með öðrum hætti. Við þurfum að styrkja stöðu Íslands í
    Evrópu og efla enn frekar samstarfið við okkar nánu vinaríki eins og
    Noreg, eins og Bretland og líka Kanada. Geta þessar þjóðir til að mynda
    sameinast í hagsmunagæslu við Evrópusambandið, svo dæmi séu tekin? Svo
    ræktum við að sjálfsögðu sterk tengsl áfram vestur um haf og horfum líka
    til Asíu því að við þurfum stöðugra efnahagslíf svo íslensk heimili þurfi
    ekki alltaf að borga hæstu vextina og lifa við mestu verðbólguna. Við
    þurfum aukna og heilbrigða samkeppni svo fólkið okkar fái meira fyrir
    peningana sína. Við þurfum að tryggja atvinnulífinu greiðan aðgang að
    mörkuðum og skapa ný tækifæri fyrir íslenskan útflutning. Þar gegnir
    EES-samningurinn, okkar mikilvægasti viðskiptasamningur, lykilhlutverki.
    Það gleður mig sérstaklega að heyra hversu einlæg og hversu djúp ást
    stjórnarandstöðunnar er nú orðin á samningnum. Ég geri ráð fyrir því að
    þessari miklu þverpólitísku samstöðu fylgi einmitt ábyrgð, því að
    EES-samningurinn er ekki eins og hver annar konfektkassi, alls ekki. Við
    þurfum að standa við okkar hlut og hætta að nálgast hann af pólitískri
    tækifærismennsku og hentistefnu. Við þurfum að efla hagsmunagæslu Íslands,
    opna nýja markaði og leita nýrra tækifæra. Ég hef þess vegna ákveðið að
    skipa spretthóp til að kortleggja hagsmunagæslu okkar og ný
    viðskiptatækifæri Íslands. Ég hef þegar rætt við atvinnulífið vegna þessa
    og við ætlum að taka höndum saman. Utanríkisstefna Íslands verður áfram
    rekin í þágu íslenskra hagsmuna. Sem utanríkisráðherra og formaður
    Viðreisnar ætla ég ekki að taka ákvarðanir til heimabrúks sem þrengja að
    framtíðarvalkosti landsins, hvorki þegar kemur að viðskiptum né varnar- og
    öryggismálum í breyttum heimi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Viðreisn kom inn í íslensk stjórnmál til að setja
    almannahagsmuni framar sérhagsmunum. Við erum stjórnmálaafl sem sættir sig
    ekki við að svona hafi þetta bara alltaf verið: Það má ekki rugga bátnum,
    bara alls ekki. Við trúum á frelsi einstaklingsins, ábyrg ríkisfjármál,
    öfluga velferð, jafnrétti, frjáls viðskipti og heilbrigða samkeppni. En
    það er ekki nóg að bara trúa; við í Viðreisn þorum líka að taka ákvarðanir
    og framkvæma. Það er alveg ljóst að sjaldan eða aldrei hefur verið meiri
    þörf fyrir frjálslynt og umbótasinnað stjórnmálaafl í heimi vaxandi öfga
    og afturhalds. Ég fagna því að nú sé að skapast breið samstaða um að
    náttúruauðlindir Íslands séu sameign þjóðarinnar og ég býst ekki við öðru
    en breiðum stuðningi við afgerandi auðlindaákvæði í stjórnarskrá í þágu
    þjóðarinnar okkar. Það er ekki tilviljun að ríkisstjórn með Viðreisn innan
    borðs taki þetta skref. Þjóðareign þarf líka að fylgja gegnsæi og sú
    sjálfsagða krafa að almenningur, fólkið okkar, viti hverjir það eru sem
    fara með réttinn til að nýta sameiginlegar auðlindir okkar og hvert
    verðmætasköpunin rennur. Þess vegna verður einnig varpað skýrara ljósi á
    eignarhald og tengsl í sjávarútvegi, bæði innlend og erlend, með frumvarpi
    atvinnuvegaráðherra í vetur. Það er hlutverk stjórnmálanna, eins og ég sé
    þau, að treysta markaðnum en gæta þess að hann sé opinn öllum, að standa
    með atvinnulífinu en ekki sérhagsmununum, að vernda eignarrétt en muna
    ávallt að sameiginlegar auðlindir eru sameign þjóðarinnar, að einfalda
    kerfin í stað þess að þenja þau út, að sjá til þess að samfélag okkar sé
    öruggt með öflugri lögreglu og traustu áfallaþoli.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Við höldum áfram því að verkefnin bíða ekki.
    Heimili og fjölskyldur þrá lægri vexti og meiri fyrirsjáanleika. Börn
    þurfa betri þjónustu. Ungt fólk vill geta séð framtíð sína á Íslandi.
    Fyrirtæki þurfa orku, samkeppnishæfni og einfaldara regluverk. Og í
    óvissum heimi þurfum við að standa fast á gildum okkar, efla bandalögin
    okkar og gæta íslenskra hagsmuna. Þar liggur pólitíkin næstu ár.
    Ríkisstjórnin, þessi samstiga ríkisstjórn, mun standa vörð um frjáls
    viðskipti til að bæta lífskjör fólks. Við munum styrkja varnir og styrkja
    öryggi Íslands og alþjóðlegt samstarf. Við munum standa með mannréttindum,
    frelsi og lýðræði. Nú hefst næsti kafli og við erum tilbúin.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>