<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-09T20:12:58" skst="SDG" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-09 20:19:03 -->

  <ns:umsýsla fundur="2" lgþ="158" tími="2026-09-09T20:12:58">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ra" nr="14">
      <ns:málsheiti>Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Góðir landsmenn. Þetta er nú meira ástandið. Það er ekki eitt, það
    er allt. Ólíkt þeirri mynd sem hefur verið dregin upp hér af forystumönnum
    ríkisstjórnarinnar gengur ekkert upp hjá þessari ríkisstjórn. Hún lét
    kjósa sig út á það að hún ætlaði að berja niður vexti og verðbólgu en var
    ekki fyrr tekin við en hún hóf aðgerðir sem stuðluðu að því að auka álögur
    á almenning, hindra verðmætasköpun í landinu og auka vexti og verðbólgu.
    Svo komu fjárlög þessa árs sem nú er að líða og þau báru þess skýrt merki
    að ríkisstjórnin bæri afskaplega lítið skynbragð á það hvernig hagkerfi
    landsins virkar, hvernig fyrirtækin og heimilin í þessu landi virka. Þar
    voru áfram teknar ákvarðanir sem færðu samfélagið í ranga átt miðað við
    það sem lagt var upp með. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Svo bar svo við fyrr á þessu ári að forystumenn ríkisstjórnarinnar
    ákváðu að boða til blaðamannafundar til að tilkynna um uppgjöf sína;
    sleggjan hafði verið lögð til hliðar. Nú þyrftum við að leita til
    Evrópusambandsins og athuga hvort það gæti lækkað fyrir okkur vexti og
    verðbólgu. Þetta var reyndar kynnt á alveg einstaklega sérkennilegan hátt,
    þann hátt að ólíkt öðrum löndum þá <!--finnst þetta skrýtin notkun, e-ð er fólgið í einhverju myndi ég sega, eins og það ætti að vera frekar að umsóknin fælist ekki í viljanum til að ganga í ESB en þá þarf að breyta „leita tilboða“ setningunni líka svo læt þetta standa.-->fælist
    umsókn Íslendinga um að komast í Evrópusambandið ekki um viljann til að
    ganga í Evrópusambandið heldur að leita tilboða. Og af stað var farið með
    þessa aðferð. En þegar gönuhlaupið var runnið út í sandinn voru viðbrögð
    stjórnarherranna eða -frúnna ekki mörkuð auðmýkt eða skilningi á afstöðu
    þjóðarinnar. Allt tal um að virða vilja þjóðarinnar hvarf eins og dögg
    fyrir sólu við sólarupprás sunnudaginn 30. ágúst. Þá var ekki lengur rætt
    um að virða vilja þjóðarinnar. Það kvað við nýjan tón, svekkelsistón en
    líka reiðitón. Allt í einu átti EES-samningurinn að verða einhvers konar
    refsivöndur. Þess skyldi hefnt frá Brussel sem hallaðist á Íslandi og
    sérlausn Íslendinga í EES-samningnum skyldi afnema sem fyrst til að
    tryggja að lög sem eru samin af embættismönnum í Brussel verði æðri þeim
    lögum sem verða til hér á Alþingi. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Ekki var reiðilesturinn fyrr búinn en ríkisstjórnin kynnti fjárlög
    næsta árs, fjárlög sem voru fyrst og fremst áminning um uppgjöfina en líka
    til þess fallin að sýna landsmönnum að þessi ríkisstjórn getur ekki lært
    af reynslunni. Það var meira af því sama, meira af því sama og hafði
    skapað vandann; hærri skattar, hærri bankaskattar til að hækka vexti,
    minni endurgreiðsla virðisaukaskatts af byggingarframkvæmdum til að hækka
    fasteignaverð, auknar álögur á atvinnulífið sem dregur úr verðmætasköpun
    og auknar álögur á allan almenning, hækkun hins nýja kílómetragjalds, því
    að það er aldrei hægt að leggja of mikið á fólk sem þarf að komast leiðar
    sinnar. Og, jú, svo voru það allar gjaldahækkanirnar sem eru áformaðar,
    5,2% yfir línuna til að gefa merki um það að lágmark verðbólgu á nýja
    árinu verði 5,2% — skilaboð ríkisins, þessarar ríkisstjórnar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ríkisstjórnin efndi til átaka og klofnings í samfélaginu.
    Forsætisráðherra sagði hér áðan: Loforð gefið, loforð efnt. Ekki loforð
    til þjóðarinnar, ekki loforð fyrir kosningar. Nei, hún var plötuð, þrátt
    fyrir að forsætisráðherrann hafi látið fylgja sögunni að það mætti ekki
    plata. Nei, þetta var loforð eins eða tveggja formanna stjórnmálaflokka
    til hins þriðja til að ná völdum. Og jú, það loforð var efnt og við sitjum
    uppi með afleiðingarnar af því. En við getum efnt loforðin, raunverulegu
    loforðin, og komið til móts við væntingar þjóðarinnar. Við getum komið til
    móts við 53% og 47%. Við getum varið fullveldið og notað það til að bæta
    hag allra landsmanna. Það hefur verið gert áður og það er hægt að gera það
    aftur. Það er hægt að ná tökum á ríkisrekstrinum án þess að hækka stöðugt
    álögur á almenning. Það er hægt að efla verðmætasköpun í samfélaginu og
    það er hægt að ná niður vöxtum og verðbólgu, en til þess þarf nýja
    ríkisstjórn.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>