<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennta- og barnamrh." frhr="0" id="r2026-09-09T20:19:15" skst="IngS" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-09 20:28:05 -->

  <ns:umsýsla fundur="2" lgþ="158" tími="2026-09-09T20:19:15">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ra" nr="14">
      <ns:málsheiti>Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Góðir Íslendingar. Í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins
    fyrir um áratug bárust mér fregnir af því að 9,1% barnanna okkar byggju
    við mismikla fátækt. Þar og þá á eldhúsgólfinu heima ákvað ég að stofna
    stjórnmálaflokk til að berjast gegn fátækt og réttlátara samfélagi fyrir
    alla. Þannig varð Flokkur fólksins til. Við gleymum því oft að á bak við
    hverja einustu tölu, hverja einustu krónu í fjárlögum er manneskja. Þar er
    eldri borgarinn sem byggði upp þetta land en þarf að velja á milli þess að
    leysa út lyfin sín eða eiga mat á diskinn. Þar er öryrkinn sem mætir
    lokuðum dyrum og fordómum í kerfi sem átti að grípa hann. Þar er einstæða
    foreldrið sem og láglaunaeinstaklingurinn sem vinnur myrkranna á milli en
    nær ekki endum saman.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hér hef ég staðið í æðsta ræðustóli landsins í níu ár og ég hef
    helgað líf mitt því að vera baráttuandi og rödd þeirra sem hafa verið sett
    hjá garði og þurft að berjast fyrir tilveru sinni hvern einasta dag. Það
    var traust ykkar og trú sem varð til þess að hér stend ég í dag sem
    ráðherra í ríkisstjórn Íslands. Eftir tæp tvö ár í ríkisstjórn horfi ég
    stolt á verkin sem við erum að vinna fyrir þá sem mest þurfa á okkur að
    halda. Fólkið fyrst, svo allt hitt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Eitt stærsta baráttumál Flokks fólksins var að stöðva hið hróplega
    óréttlæti viðvarandi kjaragliðnunar almannatrygginga. Ár eftir ár drógust
    aldraðir og öryrkjar stöðugt aftur úr launaþróun í landinu. Nú er þeim
    óréttlætiskafla lokið og samhent ríkisstjórn ykkar hefur bundið enda á þá
    skömm. Frá og með 1. janúar nk. fylgja greiðslur almannatrygginga
    launavísitölu. Aldrei hafa kjör þessara viðkvæmu hópa batnað sem nú.
    Loksins, loksins hefur okkur auðnast sú gifta að hafa tryggt öryrkjum og
    eldra fólki ígildi þess að sitja við kjaraborðið. Það er alltaf jafn
    dapurlegt að sjá að til séu þeir kjörnu fulltrúar í þessum sal sem rísa
    upp á afturlappirnar og mótmæla harðlega þessari kjarabót til eldra fólks
    og öryrkja. Á sama tíma verja þau hin sömu með kjafti og klóm
    milljarðagróða þeirra ofurríku sem aldrei má snerta. Hvers konar samfélag
    er það sem státar af auðlegð og jöfnuði en á sama tíma hefur ekki efni á
    réttlæti fyrir alla?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Árum saman barðist Flokkur fólksins í stjórnarandstöðu fyrir
    lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Nú í
    samhentri ríkisstjórn hefur samningurinn verið lögfestur með allri þeirri
    réttarvernd sem hann veitir fötluðum. Við höfum hækkað og erum enn að
    hækka almennt frítekjumark eldra fólks og höfum tryggt tekjulægstu hópunum
    skatta- og skerðingalausan jólabónus.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Kæra þjóð. Eitt mikilvægasta verkefni sem ég hef tekið að mér er
    þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila um land allt. Á fimm ára tíma
    framkvæmdaáætlunar eru 1.507 hjúkrunarrými, þar af tæplega 1.400 ný,
    akkúrat núna komin í framkvæmd. Það jafngildir hvorki meira né minna en
    45% fjölgun hjúkrunarrýma á landsvísu. Til samanburðar fjölgaði
    hjúkrunarrýmum um einungis 69 á fimm árum síðustu ríkisstjórnar. Algjört
    úrræðaleysi ríkti í málaflokknum með þeim alvarlegu afleiðingum sem því
    fylgdi. Við munum eyða öllum biðlistum eldra fólks eftir öryggi og umönnun
    og stuðla þannig að því að elsta kynslóðin okkar muni eiga áhyggjulaust
    ævikvöld.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mikill útskriftarvandi hefur verið á Landspítala,
    háskólasjúkrahúsi, en vegna aðgerða okkar hefur vandinn ekki verið minni
    um margra ára skeið. Nú dvelja þar um 50 aldraðir einstaklingar, þar af
    hluti sem ekki er tilbúinn til útskriftar og þarf á áframhaldandi
    sjúkrahúsþjónustu að halda. Fyrr á árinu og á undangengnum árum hefur
    þessi tala verið vel á annað hundrað aldraðra sem ekki hafa fengið búsetu
    og umönnun við hæfi og mátt þola að vera nefndir fráflæðisvandi í
    heilbrigðiskerfinu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Góðir Íslendingar. Í sumar lauk stærstu og verðmætustu
    strandveiðivertíð frá upphafi. Flokkur fólksins hefur barist ötullega
    fyrir brothættustu byggðir landsins og fyrir auknu frelsi til strandveiða.
    Með auknu frelsi fær þjóðin greiðari aðgang að sameiginlegri sjávarauðlind
    sinni. Síðastliðið vor var samþykkt fyrsta samgönguáætlun frá því á árinu
    2020. Þar eru boðaðar stórauknar viðhaldsaðgerðir með tilheyrandi auknu
    fjármagni. Við ætlum líka að byrja á að bora göng á næsta ári. Ég legg
    ekki meira á ykkur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við erum að taka landamærin föstum tökum og við heyjum harða og
    nauðsynlega baráttu gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Öryggi borgaranna
    verður alltaf í fyrirrúmi og við munum hvergi hvika frá því að verja
    samfélagið okkar með öllum tiltækum ráðum gegn allri ógn sem að okkur kann
    að steðja.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Kæru Íslendingar. Þegar kemur að mennta- og barnamálum höfum við
    þurft að horfast í augu við gríðarstórar áskoranir. Við getum ekki og við
    munum ekki sætta okkur við að stór hópur barna ljúki grunnskóla án þess að
    geta lesið sér til gagns. Við getum ekki sætt okkur við að vera enn á ný í
    fallsæti PISA-kannana. Við getum ekki sætt okkur við að framtíðartækifæri
    barna okkar ráðist af því í hvaða póstnúmeri þau búa eða hver staða
    foreldra þeirra er. Kerfinu þarf að breyta og kerfinu verður breytt. Við
    ætlum að einfalda aðalnámskrá með aukinni áherslu á kjarnagreinar eins og
    lestur, íslensku og stærðfræði. Við höfum jafnframt hafið stórsókn í
    útgáfu námsgagna til að létta undir með okkar frábæru kennurum sem þurfa
    aukinn stuðning, meiri sérhæfingu og skilvirkari starfsþróun. Í fyrsta
    sinn höfum við birt einkunnir eftir skólum til að geta greint vandann og
    tryggt aðstoð nákvæmlega þar sem hennar er mest þörf. Í fyrsta sinn
    leggjum við fyrir samræmd stöðupróf. Í fyrsta sinn höfum við sett lög um
    miðlægan nemendagrunn og setjum nú í vetur fyrstu ungmennastefnu landsins.
    Í fyrsta sinn höfum við sett samræmdar reglur um símafrið í skólum og
    munum stíga það mikilvæga skref að hækka aldurstakmörk á samfélagsmiðlum
    til að vernda andlega heilsu ungmennanna okkar. Í fyrsta sinn er áhersla á
    raungreinar tryggð, sérstaklega í atvinnustefnu stjórnvalda, og í fyrsta
    sinn í langan tíma er farið í raunverulegt stórátak í uppbyggingu
    verknámsskóla um allt land.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við erum einnig að innleiða tölustafi aftur í einkunnagjöf til að
    tryggja jafnræði og skýrara námsmat. Fram undan eru síðan mestu breytingar
    á barnaverndarlögum í tuttugu ár, nýtt meðferðarheimili í Garðabæ og
    fyrsta heildstæða aðgerðaáætlun Íslands gegn fátækt barna. Málin verða
    vart stærri en svo.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Kæra þjóð. Það er ósköp auðvelt að standa í ræðustóli og þykjast
    vera vinur öryrkja, eldra fólks, barna og fátækra þegar kosningar nálgast.
    Orð eru ódýr og loforðin fljót að gleymast en raunverulega prófraunin
    kemur þegar stjórnmálamenn þurfa að velja á milli þeirra sem eiga sterka
    og háværa hagsmunagæslu og þeirra sem enga eiga. Flokkur fólksins þekkir
    sitt erindi. Við erum ekki komin hingað til að þjóna einhverri valdaelítu
    eða gæta að sérhagsmunum útvalinna. Við skuldum engri elítu neitt. Við
    skuldum fólkinu í landinu allt. Í því felst okkar mesta frelsi, frelsi til
    að segja sannleikann, standa fast á okkar hugsjónum og berjast af
    heilindum fyrir því sem er rétt. Við höfum áorkað miklu á stuttum tíma en
    við erum rétt að byrja. Fólkið fyrst og svo allt hitt.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>