<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-09T20:28:22" skst="SVS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-09 20:35:00 -->

  <ns:umsýsla fundur="2" lgþ="158" tími="2026-09-09T20:28:22">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ra" nr="14">
      <ns:málsheiti>Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Nú eru tvö ár liðin frá því að ríkisstjórnin
    tók til starfa, verkstjórn hæstv. forsætisráðherra Kristrúnar Frostadóttur
    og valkyrjanna. Því er þetta góður tímapunktur til að líta til baka og
    skoða verk hinnar svokölluðu verkstjórnar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Fyrir síðustu kosningar vantaði ekki loforðin eða slagorðin. Flest
    af því hefur elst mjög illa, svo vægt sé til orða tekið. Það átti að berja
    niður vextina og verðbólgu með hinni frægu sleggju. En viti menn,
    verðbólgan er á uppleið. Verðbólguvæntingar eru enn mjög háar og hækkuðu
    reyndar eftir framlagningu fjárlaga ríkisstjórnarinnar. Og vextirnir: Já,
    virðulegur forseti, vextirnir hafa hækkað og hækkað og standa nú í 8%.
    Ríkisstjórnin virðist vera þess vanmáttug að valda því verkefni sem hún
    var kosin út á; verkefni sem hún lagði höfuðáherslu á fyrir kosningar,
    verkefni sem þjóðin treysti henni fyrir, verkefni sem hún gleymdi og fór í
    annað.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í nýútkomnu fjárlagafrumvarpi kveður við sama tón, sama stef og
    áður, þrátt fyrir að öllum ætti að vera ljóst að aðferðafræði
    ríkisstjórnarinnar mun ekki gagnast í baráttunni við vexti og verðbólgu.
    Aðferðafræðin, sem var gagnrýnd hér á Alþingi af atvinnulífinu og
    verkalýðshreyfingunni, að hækka skatta og gjöld langt umfram
    verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands. Seðlabankinn sjálfur hefur bent á það
    margoft við sínar vaxtaákvarðanir að einn stór þáttur í því að vextir séu
    hækkaðir séu hækkanir hjá hinu opinbera. Þar dró ríkisstjórnin vagninn í
    síðustu fjárlögum með 3,2% hækkun krónutölugjalda og bætir nú í með 5,2%
    hækkun sömu gjalda.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hvernig menn fá það út að þetta muni ganga með enn meiri hækkun er
    ráðgáta, virðulegur forseti. En ef það væru bara hækkanir á
    krónutölugjöldum sem þessi ríkisstjórn ætlaði að skella á almenning og
    koma fram í fjárlögum væri maður mögulega aðeins rólegri. En nei,
    kílómetragjaldið mun hækka um 4 milljarða sem leggst ofan á þá rúmlega
    þrjá milljarða sem var hækkun síðasta árs. Það þýðir að í raun eru auknar
    álögur á bifreiðaeigendur í nýju kerfi orðnar rúmir 7 milljarðar. Við
    megum ekki gleyma 7,5 milljarða kr. hækkuninni út af vörugjöldum á ökutæki
    sem var samþykkt um síðustu áramót.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Þetta eru svakalegar upphæðir. Ef við hugsum
    til ferðaþjónustunnar: 9 milljarða kr. hækkun gjalda á ferðaþjónustuna er
    um helmingur af hagnaði greinarinnar á síðasta ári og mun klárlega ekki
    styðja við þá mikilvægu atvinnugrein sem ferðaþjónustan er fyrir okkur
    Íslendinga. Þvert á móti. Alls eru á milli 20 og 30 milljarða kr.
    skattahækkanir boðaðar í fjárlögum næsta árs. Hvert heldur hæstv.
    ríkisstjórn að þessar hækkanir muni fara annað en út í verðlag og enda á
    borðum heimila og fyrirtækja í landinu?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hallalaus fjárlög, sama hvað þau kosta, virðulegur forseti. Þetta
    voru orð hæstv. forsætisráðherra hér í þinginu í vor: Hallalaus fjárlög,
    hvað sem þau kosta. Og þessi fjárlög kosta of mikið. Þetta er röng
    aðferðafræði og ríkisstjórnin er á rangri leið. Hver man ekki eftir
    verðmætasköpunarhaustinu? Ekkert gerðist og nú er aftur komið haust og það
    er farið að kólna; ekki bara í veðri heldur einnig í efnahag þjóðarinnar.
    Atvinnuleysið er á uppleið, hagvöxtur á niðurleið og forsenduákvæði
    kjarasamninga er brostið. En hvernig komumst við þangað? Jú, með röngum
    ákvörðunum, rangri forgangsröðun og ráðaleysi ríkisstjórnarinnar í
    efnahagsmálum. Því miður var fókusinn annars staðar og því sitjum við uppi
    með tvö glötuð ár og verri stöðu en lagt var af stað með.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Þann 29. ágúst hafnaði þjóðin áframhaldandi
    aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Við í Framsókn studdum
    þjóðaratkvæðagreiðslu enda treystum við þjóðinni. Þjóðin var spurð og
    meiri hlutinn sagði nei. Næsta verkefni Alþingis hlýtur því að vera að
    draga umsóknina formlega til baka og loka þar með þessu máli.
    Stjórnskipulega er það mjög mikilvægt að ekki leiki vafi á því hver
    niðurstaðan varð og hver þjóðarviljinn sé og hann sé virtur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það er kominn tími á þjóðarsátt. Framsóknarflokkurinn er
    reiðubúinn til samstarfs í vetur. Við höfum lagt fram tillögur í
    efnahagsmálum og munum halda því áfram. Sá tími sem fór í deilur um
    aðildarviðræður við Evrópusambandið er liðinn. Nú taka við verkefni
    vetrarins; heilbrigðisþjónustan sem þarf að styrkja, fjölskyldur sem þurfa
    svigrúm, fyrirtæki sem þurfa að geta fjárfest og sótt fram og menntun sem
    þarf að taka föstum tökum. Kjarni málsins er einfaldur, virðulegur
    forseti: Við eigum og getum náð mun betri árangri. En þá þarf
    forgangsröðunin að vera skýr og fjármunirnir að nýtast þar sem þeirra er
    mest þörf. Niðurstaðan af þessu öllu, virðulegur forseti, er því miður sú
    að ríkisstjórnin fær falleinkunn í hagstjórn. Í stað þess að fara
    Framsóknarleiðina með áherslu á vinnu, vöxt og velferð blasir við önnur
    niðurstaða: Ríkisstjórn sem hefur því miður valið að fara leið skatta,
    samdráttar og skerðingar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>